Innlent

Man varla eftir öðrum eins slagsmálum á Húsavík

Fimm slösuðust í hópslagsmálum á Húsavík um helgina. Átökin urðu milli útlendinga og heimamanna og man lögreglan varla annað eins.

Það var um tvöleytið aðfararnótt sunnudags sem ágreiningur varð á veitingastaðnum Gamla-Bauk milli Íslendings og erlends farandverkamanns. Aðalsteinn Júlíusson, varðstjóri hjá lögreglunni á Húsavík, segir að mennirnir hafi slegist í kjölfarið og þau átök þróast út í hópslagsmál, þar sem tvær fylkingar börðust, bæði innan húss og utan. Í annarri fylkingunni voru heimamenn en í hinni útlendingar.

Lögreglan telur þó ekki að ágreininginn megi rekja til rasisma eða þjóðernishyggju heldur hafi ágreiningsefnið verið fyllerísrugl og vitleysa, eins og varðstjóri orðaði það í samtali við fréttastofu Stöðvar 2.

 

Afeiðingar átakanna á Húsavík urðu þær að fimm heimamenn slösuðust, þar af tveir alvarlega. Einn liggur fótbrotinn á Sjúkrahúsi Akureyrar og annar kjálkabrotnaði. Þá eru fleiri bólgnir og bláir og með sokkin augu. Ekki er vitað til að neinn hinna slösuðu sé í hópi erlendu farandverkamannanna.

 

Það var svo með hjálp dyravarða og almennra borgara sem lögreglu tókst að leysa upp slagsmálin en þau þykja nánast einstæð í seinni tíð á Húsavík. Mikið annríki hefur verið Húsavíkurlögreglu við rannsókn málsins síðustu daga. Rætt verður við mörg vitni enda er málið litið mjög alvarlegum augum og fer fyrir dómstóla.

Á Akureyri leysti lögregla einnig upp hópslagsmál um helgina á bryggjunni við Eimskip. Lagt var hald á rörbút sem mögulega átti að nota sem vopn. Þessi tvö mál virðast þó óskyld samkvæmt því sem lögregla segir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×