Mistubishi og þýskur álframleiðandi með Arctus í Þorlákshöfn 28. september 2007 12:17 MYND/Einar Elíasson
Japanska stórfyrirtækið Mitsubishi ásamt þýska álframleiðslufyrirtækinu Trimet Aluminium verða samstarfsaðilar íslenska ráðgjafafyrirtækisins Arctus um bygingu álvers í fyrirhuguðum Áltæknigarði í Þorlákshöfn. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Arctus. Þar segir einnig að fulltrúar þessara aðila hafi komið nokkrum sinnum hingað til lands og kynnt sér aðstæður í Ölfusi og rætt við orkufyrirtækin. Bæjarstjórn Ölfus samþykkti á fundi sínum í lok ágúst að hefja formlegar samningaviðræður við Arctus um lóð fyrir áltæknigarð og álver og samkvæmt verkefnisáætlun er gert ráð fyrir að hefja byggingu fyrsta hluta álversins árið 2009, sem gæti hafið rekstur árið 2011 og framleitt 60 þúsund tonn á ári. Orkuþörfin fyrir þennan fyrsta áfanga er hundrað megavött eftir því sem segir í tilkynningu Arctus. Gert er ráð fyrir að álverið verði síðan stækkað í áföngum allt eftir framboði og afhendingu á orku á tímabilinu 2012-2020. Fullvinnsla áls skili mun fleiri störfum Arctus segir að bæði Mitsubishi og Trimet hafi lýst yfir miklum stuðningi við hugmynd Arctus um Áltæknigarðinn í Þorlákshöfn til að laða fyrirtæki í fullvinnslu áls hingað til lands. Áætlað sé að geta afhent þessum fyrirtækjum mismunandi álvörur og málmblöndur til fullvinnslu í fljótandi og föstu formi. Þá segist Arctus þegar byrjað að kynna áltæknigarðinum meðal nokkurra álframleiðslufyrirtækja erlendis. Sagt er að hvert tonn í fullvinnslu áls skapi um tíu sinnum fleiri, áhugaverðari og virðisaukandi störf en í álbræðslu.Mitsubishi er eitt af stærri fyrirtækjum í Japan með upp á 230 milljarðar dollara. Félagið á hlut í fimm álverum víða um heim og kaupir og selur um 1,7 milljónir tonn af áli árlega. Trimet Aluminium er orðinn stærsti álframleiðandinn í Þýskalandi með tvö álver í Hamborg og Essen. Það hefur sérhæft sig í álvörum og málmblöndum fyrir fullvinnslufyrirtæki í áliðnaði um allan heim.
Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Kristrún ræðir málin í Sprengisandi Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Fleiri fréttir „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin í Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Sjá meira