Innlent

Mistubishi og þýskur álframleiðandi með Arctus í Þorlákshöfn

MYND/Einar Elíasson

Japanska stórfyrirtækið Mitsubishi ásamt þýska álframleiðslufyrirtækinu Trimet Aluminium verða samstarfsaðilar íslenska ráðgjafafyrirtækisins Arctus um bygingu álvers í fyrirhuguðum Áltæknigarði í Þorlákshöfn. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Arctus.

Þar segir einnig að fulltrúar þessara aðila hafi komið nokkrum sinnum hingað til lands og kynnt sér aðstæður í Ölfusi og rætt við orkufyrirtækin. Bæjarstjórn Ölfus samþykkti á fundi sínum í lok ágúst að hefja formlegar samningaviðræður við Arctus um lóð fyrir áltæknigarð og álver og samkvæmt verkefnisáætlun er gert ráð fyrir að hefja byggingu fyrsta hluta álversins árið 2009, sem gæti hafið rekstur árið 2011 og framleitt 60 þúsund tonn á ári. Orkuþörfin fyrir þennan fyrsta áfanga er hundrað megavött eftir því sem segir í tilkynningu Arctus. Gert er ráð fyrir að álverið verði síðan stækkað í áföngum allt eftir framboði og afhendingu á orku á tímabilinu 2012-2020.

Fullvinnsla áls skili mun fleiri störfum

Arctus segir að bæði Mitsubishi og Trimet hafi lýst yfir miklum stuðningi við hugmynd Arctus um Áltæknigarðinn í Þorlákshöfn til að laða fyrirtæki í fullvinnslu áls hingað til lands. Áætlað sé að geta afhent þessum fyrirtækjum mismunandi álvörur og málmblöndur til fullvinnslu í fljótandi og föstu formi. Þá segist Arctus þegar byrjað að kynna áltæknigarðinum meðal nokkurra álframleiðslufyrirtækja erlendis. Sagt er að hvert tonn í fullvinnslu áls skapi um tíu sinnum fleiri, áhugaverðari og virðisaukandi störf en í álbræðslu.

Mitsubishi er eitt af stærri fyrirtækjum í Japan með upp á 230 milljarðar dollara. Félagið á hlut í fimm álverum víða um heim og kaupir og selur um 1,7 milljónir tonn af áli árlega. Trimet Aluminium er orðinn stærsti álframleiðandinn í Þýskalandi með tvö álver í Hamborg og Essen. Það hefur sérhæft sig í álvörum og málmblöndum fyrir fullvinnslufyrirtæki í áliðnaði um allan heim.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×