Innlent

200 milljóna króna hagræðing hjá MS vegna lakrar afkomu

Forsvarsmenn MS hyggjast grípa til hagræðingaraðgerða upp á allt að 230 milljónir króna vegna slakrar afkomu félagsins á fyrri helmingi ársins. Meðal annars á að selja húsnæði Osta- og smjörsölunnar.

Fram kemur á vef Bændablaðisins að MS hafi tapað um 180 milljónum á fyrri helmingi ársins og á fulltrúafundi Auðhumlu, móðurfélags MS, í gær hafi verið lagðar fram tillögur stjórnar um aðgerðir til að hagræða í rekstri MS vegna þessa.

MS hyggst meðal annars hætta að pakka mjólk og smjöri á Egilsstöðum en framleiða áfram mozzarella-ost þar. Áfram verður þó tekið á móti mjólk frá Austurlandi en henni pakkað á Akureyri. Með þessu á að spara á bilinu 20-40 milljónir króna.

Bændablaðið segir hins vegar að sú aðgerð sem mestu muni skila felist í því að færa bita- og sneiðapökkun á osti úr húsnæði Osta- og smjörsölunnar í hús MS við Bitruháls. Sú hagræðing á að skila 60-70 milljónum króna en auk þess er ætlunin að selja hús Osta- og smjörsölunnar.

Þá er ætlunin að flytja fastaostagerð frá Búðardal til Akureyrar eða Sauðárkróks en á hinn bóginn verður desertostagerðin sem nú fer fram í Búðardal og á Selfossi sameinuð í Búðardal. Þessi breyting á að skila 25-30 milljónum króna. Loks á að fækka um 10 stöðugildi í stjórnun og stoðdeildum. Samanlagt eiga aðgerðir MS að skila á bilinu 170-230 milljónum króna í sparnað.

Fram kom í máli Guðbrands Sigurðssonar, forstjóra MS, á fundinum að tapið á fyrri hluta árs mætti fyrst og fremst rekja til þeirra ákvarðana forsvarsmanna MS að lýsa yfir verðstöðvun á mjólk út þetta ár ásamt því að verð til bænda hækkaði sem nam þróun launaliðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×