200 milljóna króna hagræðing hjá MS vegna lakrar afkomu 28. september 2007 11:03
Forsvarsmenn MS hyggjast grípa til hagræðingaraðgerða upp á allt að 230 milljónir króna vegna slakrar afkomu félagsins á fyrri helmingi ársins. Meðal annars á að selja húsnæði Osta- og smjörsölunnar. Fram kemur á vef Bændablaðisins að MS hafi tapað um 180 milljónum á fyrri helmingi ársins og á fulltrúafundi Auðhumlu, móðurfélags MS, í gær hafi verið lagðar fram tillögur stjórnar um aðgerðir til að hagræða í rekstri MS vegna þessa. MS hyggst meðal annars hætta að pakka mjólk og smjöri á Egilsstöðum en framleiða áfram mozzarella-ost þar. Áfram verður þó tekið á móti mjólk frá Austurlandi en henni pakkað á Akureyri. Með þessu á að spara á bilinu 20-40 milljónir króna. Bændablaðið segir hins vegar að sú aðgerð sem mestu muni skila felist í því að færa bita- og sneiðapökkun á osti úr húsnæði Osta- og smjörsölunnar í hús MS við Bitruháls. Sú hagræðing á að skila 60-70 milljónum króna en auk þess er ætlunin að selja hús Osta- og smjörsölunnar. Þá er ætlunin að flytja fastaostagerð frá Búðardal til Akureyrar eða Sauðárkróks en á hinn bóginn verður desertostagerðin sem nú fer fram í Búðardal og á Selfossi sameinuð í Búðardal. Þessi breyting á að skila 25-30 milljónum króna. Loks á að fækka um 10 stöðugildi í stjórnun og stoðdeildum. Samanlagt eiga aðgerðir MS að skila á bilinu 170-230 milljónum króna í sparnað. Fram kom í máli Guðbrands Sigurðssonar, forstjóra MS, á fundinum að tapið á fyrri hluta árs mætti fyrst og fremst rekja til þeirra ákvarðana forsvarsmanna MS að lýsa yfir verðstöðvun á mjólk út þetta ár ásamt því að verð til bænda hækkaði sem nam þróun launaliðar.
Mest lesið Eldur kviknaði á Völlunum Innlent Ísraelsher viðurkennir að hafa skotið fimm ára stúlku Erlent Vaxtahækkunin geti gert illt verra Innlent Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Innlent „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Innlent Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ Innlent Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Innlent Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Innlent Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Innlent Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt Innlent Fleiri fréttir Eldur kviknaði á Völlunum Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sammála því að erfitt haust sé í vændum Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Samþykkti samninginn: „Lágmark að láta fjármagn fylgja“ Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Fjármálaráðherra og vinnumarkaðurinn bregðast við vaxtahækkun SVÞ og netáfengisverslanir skora á Alþingi Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Gæsluvarðhald framlengt yfir meintum Kársnesmorðingjum Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Gæti séð fyrir sér að kjarasamningar haldi Hafi byrlað tólf ára fósturdóttur og nauðgað ítrekað Vilja banna frjáls ferðalög ísraelskra ferðamanna á Íslandi Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Brotin úr jakanum geti valdið flóðbylgju Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ „Jón Sigurðsson nefndi aldrei sjálfstæði“ Stýrivextir hækka og borgarísjaki í Djúpinu Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Maríjon aðstoðar þingmenn Sjálfstæðisflokksins Lítið jökulhlaup hafið í Múlakvísl Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Sjá meira