Sakfelldur fyrir að smygla amfetamíni og sterum inn á Litla-Hraun 28. september 2007 10:43
Héraðsdómur Suðurlands hefur sakfellt fanga á Litla-Hrauni fyrir fíkniefnabrot og brot á tolla- og lyfsölulögum fyrir að hafa reynt að smygla bæði amfetamíni og anabólískum sterum inn í fangelsið. Maðurinn flúði í nóvember í fyrra frá fangavörslumönnum við Héraðsdóm Reykjavíkur þegar átti að færa hann fyrir dóm en gaf sig svo fram við fangelsismálayfirvöld á Litla-Hrauni tveimur dögum síðar. Við röntgenskoðun kom í ljós að hann hafði komið einhverjum pakkningum fyrir í endaþarmi sínum. Reyndust þær þrjár og höfðu að geyma um 180 töflur af sterum og nærri 40 grömm af amfetamíni. Maðurinn játaði fyrir dómi að hafa haft amfetamínið í sinni vörslu en sagðist hafa talið að sterarnir væru fæðubótarefni sem ávísuð hefðu verið frá lækni til kunningja hans. Hann gat hins vegar ekki lagt fram nein gögn máli sínu til stuðnings. Taldi dómurinn að með tilliti til þeirrar aðferðar sem maðurinn notaði við að koma töflunum inn í fangelsið að það væri hafið yfir skynsamlegan vafa að hann vissi að um ólögleg efni væri að ræða. Var hann því sakfelldur fyrir það. Maðurinn á að baki langan sakaferil og var síðast dæmdur í þriggja ára fangelsi í Hæstarétti í sumar, meðal annars fyrir fíkniefnabrot. Taldi dómurinn í ljósi þess að maðurinn hefði framið ofangreind brot í nóvember í fyrra að um hegningarauka að ræða. Með vísan til laga var honum ekki gerð refsing í málinu.
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Innlent Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Sjá meira