Ráðist inn í sorg sjötugrar ekkju 26. september 2007 12:52 Á annað hundrað spurningar eru lagðar fram í könnuninni. MYND/HKS
Ekkja sem missti mann sinn fyrir þremur mánuðum fékk í vikunni senda könnun þar sem hún er meðal annars beðin um að svara spurningum um kynlíf sitt og áfengis- og lyfjanotkun eftir missinn. Ekkjan, sem er á sjötugsaldri, er enn í sárum eftir fráfall manns síns og segir dóttir hennar að könnunin beri vitni um fullkomið dómgreindarleysi af hálfu þeirra sem að henni standa. Könnunin er liður í lokaverkefni sálfræðinema en ábyrgðarmaður er sálfræðingur á öldrunarsviði Landspítalans. „Hvernig getur fagfólki dottið í hug að ráðast inn í sorg fólks með þessum hætti," sagði dóttir ekkjunnar í samtali við Vísi. „Þessi könnun er einstaklega ósmekkileg og sýnir fullkomið dómgreindarleysi af hálfu þeirra sem að henni standa." Dóttirin óskaði nafnleyndar þar sem móðir hennar vill ekki nafn sitt komi fram. Ekkjan hefur þegar sett sig í samband við Persónuvernd vegna könnunarinnar. Könnnunin er liður í lokaverkefni Þóru Bjarkar Bjarnadóttur, sálfræðinema við háskólann í Árósum í Danmörku. Ábyrgðamaður hennar er hins vegar Berglind Magnúsdóttir, sálfræðingur á öldrunarsviði Landspítalans-háskólasjúkrahúss. Könnunin er 20 blaðsíður að lengd og spurningarnar á annað hundrað talsins. Þar er meðal annars spurt út í líðan viðkomandi eftir fráfall maka, lyfja- og áfengisnotkun og kynlíf. Með könnuninni er bréf þar sem fólki er boðið upp á áfallahjálp eftir að hafa svarað spurningunum. Í bréfinu kemur ennfremur fram að markmið rannsóknarinnar sé að kanna líðan fólks á aldrinum 65 ára og eldra sem misst hefur maka sinn á undanförnum vikum. Þóra Björk Bjarnadóttir sagði í samtali við Vísi það ekki vera tilgang könnunarinnar að særa fólk. „Við vitum að þetta eru mjög erfiðir tímar hjá fólki og viðkvæmt mál. Við gengum í gegnum mikið ferli til að fá þetta samþykkt bæði hjá Persónuvernd og Vísindasiðanefnd." Að sögn Þóru var könnunin send til 180 einstaklinga hér á landi. Fyrst til 90 einstaklinga í byrjun sumars og svo aftur nú í haust. Þóra segist ekki hafa fengið kvartanir hingað til. „Það eru hins vegar margir búnir að hringja í mig sem eru ánægðir með þetta." Þá segir Þóra mikilvægt að senda könnunina snemma í sorgarferli fólks þar sem markmiðið er að greina vissa áhættuþætti hjá syrgjendum. „Þessi aldurshópur hefur verið yfirlitinn og því teljum við þetta vera mjög þarft verkefni. Við fengum meðal annars styrk frá Öldrunarráði." Ekki náðist í Berglindi Magnúsdóttur við gerð fréttarinnar.
Mest lesið Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Innlent Greindi þátt almennings og fjölmiðla í máli „strokufangans“ Innlent Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Innlent Þúsundir syrgja í Tehran og Trump segir æðstaklerkinn ljúga Erlent Mikill viðbúnaður vegna eftirfarar á Sæbraut Innlent Reiða fram rúma milljón fyrir Jakub Innlent Allt að sautján stiga hiti í dag Veður Málið rannsakað sem tilraun til manndráps Innlent Telja Múmínlundinn klárt brot á höfundarétti Innlent Steini frá Straumnesi látinn Innlent Fleiri fréttir Veiðigjöld ekki á dagskrá þingfundar í dag Gripinn við innbrot og bíl ekið inn í búð Greindi þátt almennings og fjölmiðla í máli „strokufangans“ Mikill viðbúnaður vegna eftirfarar á Sæbraut Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Reiða fram rúma milljón fyrir Jakub Tilraun langtímakjarasamninga hafi mistekist Málið rannsakað sem tilraun til manndráps Telja Múmínlundinn klárt brot á höfundarétti Glænýr leikskóli í Mosfellsbæ heitir Sumarhús Verðbólguvonbrigði, hraðakstur og kokkur með keppnisskap Málið týndist í kerfinu og reyndist á endanum fyrnt Segulómtækið enn óvirkt og beðið eftir þúsund lítrum af helíni „Allar kannanir eru með einhverja óvissu“ Steini frá Straumnesi látinn Áfram frestað meðan formenn funda Birgir Ármannsson kominn með málflutningsréttindi Þingmenn ekki svo heppnir að fá tvöföld laun Standa saman gegn „óskiljanlegri“ ósk Vegagerðarinnar Helgi leiðir nefnd um atvinnumál í Norðurþingi Nú má heita Kareem Link Baggio og Anóra Vava Star Kerfið bilaði og atkvæði greidd upp á gamla mátann Ánægja með gjaldfrjálsar skólamáltíðir en fjármögnunin áskorun Verðbólga eykst og Alþingi í óvissu Gerðu úttekt á skrifstofu Ríkissáttasemjara Stærsti árgangur sögunnar fer í framhaldsskóla: „Það verður þétt setið í skólastofunni“ Flakk á fylginu og brunamótamatið vanáætlað Lögregla varar við „Nígeríubréfum“ og öðrum netglæpum Veita engar upplýsingar um tilboðið í Háholt Sjá meira