Innlent

Vara við ferðum á Snæfellsnesi

Andri Ólafsson skrifar

Lögreglan hafði rétt í þessu samband við Vísi til þess að vara fólk við að vera að óþörfu á ferðinni á norðanverðu Snæfellsnesi í dag vegna hvassviðris. Sigurður Þ. Ragnarsson veðurfræðingur á Veðurstofu Stöðvar 2 tekur undir þessu varnaðarorð. "Já það má búast við vindhraða á bilinu 20-30 m/s á norðanverðu nesinu í dag og að hviður geti slegið í um eða yfir 40 m/s," segir Sigurður"

"Raunar verður víða hvasst á vestanverðu landinu í dag en einna verstar eru þó horfurnar fyrir norðanvert Snæfellsnes. Þá verður mjög hviðusamt veður undir Hafnarfjalli og raunar víða í námunda við fjöllótt og skörðugt landslag" segir Sigurður. Samfara þessu hvassviðri eru eindregin hlýindi á landinu og viða vætusamt, einkum þó sunnan og vestan til.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×