Innlent

Rekur verslun í Grímsey af hugsjón

Verslunarstjórinn í Grímsey segir að tekist hafi að koma í veg fyrir fólksflótta úr eynni með því að endurreisa matvörubúðina. Búðin er rekin af hugsjón.

Anna María Sigvaldadóttir ákvað á síðustu stundu í fyrra að taka við rekstri fyrri eigenda. Hún segir að annars hefði allur verslunarrekstur lagst af í eynni og þá hefðu afleiðingarnar orðið uggvænlegar. Hún segir að suma mánuði vinni hún launalaust.

Íbúar í Grímsey eru sammála verslunarstjóranum um að það myndi kalla á alvarlega fólksfækkun í eynni ef búðin hætti rekstri. Það má því segja að þessi verslunarstjóri, sem hægt er að hringja í nánast allan sólarhringinn og biðja hana að opna búðina sína, haldi heilu byggðarlagi á floti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×