Innlent

Saka Alþjóðahús um að niðurgreiða þýðingarþjónustu með styrkjum

Þýðingastofan Skjal hefur kvartað til Samkeppniseftirlitsins vegna þátttöku Alþjóðahúss í útboði Ríkiskaupa vegna túlka- og þýðingarþjónustu fyrir opinber fyrirtæki og stofnanir.

Fram kemur í tilkynningu frá Skjali að forsvarsmenn fyrirtækisins telji að Alþjóðahús, sem er einkahlutafélag í eigu Reykjavíkurdeildar Rauða krossins, sitji ekki við sama borð og einkarekin fyrirtæki og því óeðlilegt að það taki þátt í samkeppnisútboðum. Forsvarsmenn Skjals benda meðal annars á að Alþjóðahús sé með þjónustusamninga við fjögur sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu og njóti meðal annars styrkja frá félagsmálaráðuneytinu, menntamálaráðuneytinu, Hafnarfjarðarbæ og Landsvirkjun.

Fer Skjal fram á það að samkeppnisyfirvöld kanni hvort starfsemi Alþjóðahúss uppfylli reglugerð um aðskilið bókhald hjá fyrirtækjum sem veitt eru sérstök réttindi eða einkaréttur.

„Með því að bjóða upp á þýðingar og túlkun er Alþjóðahús í beinni samkeppni við fjölmarga þýðendur á markaði og höfum við ástæðu til að ætla að Alþjóðahús niðurgreiði þann hluta þjónustunnar með öðrum hlutum þess, þ.m.t. styrkjum sem fyrirtækið fær frá ríki og borg. Þannig nær fyrirtækið að bjóða upp á þjónustu til einstaklinga og fyrirtækja sem styrkt er með almannafé," segir m.a. í kvörtuninni sem Skjal hefur sent Samkeppniseftirlitinu.

Alls sendu sex aðilar inn tilboð í útboði Ríkiskaupa vegna túlka- og þýðingarþjónustu fyrir opinber fyrirtæki og stofnanir. Tilboðin eru nú til skoðunar hjá Ríkiskaupum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×