Innlent

Verðlaunaður fyrir baráttu gegn loftlagsbreytingum

Ólafur Ragnar Grímsson flytur ávarp eftir að hafa tekið við verðlaununum í gær.
Ólafur Ragnar Grímsson flytur ávarp eftir að hafa tekið við verðlaununum í gær. MYND/forseti.is

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, tók í gær við verðlaunum frá Louise T. Blouin stofnuninni fyrir forystu á alþjóðavettvangi í baráttunni gegn loftslagsbreytingum og fyrir að stuðla að nýrri sýn á nýtingu hreinnar orku víða um heim.

Fram kemur í tilkynningu frá forsetaembættinu að stofnunin hafi verið sett á laggirnar fyrir fáeinum árum og efni árlega til leiðtogafundar í New York sem helgaður sé þörfinni á nýrri forystu í alþjóðamálum. Meðal þeirra sem fengið hafa verðlaunin, eru Bill Clinton, fyrrverrandi Bandaríkjaforseti og Abdullah II konungur Jórdaníu.

Fjölmargir leiðtogar á alþjóðavettvangi sækja leiðtogafundinn í New York en á honum tók forseti Íslands þátt í hringborðsumræðum um ný viðhorf til loftslagsbreytinga og hvernig unnt er að virkja almenning og fyrirtæki í þeirri baráttu. Þá var einnig fjallað um baráttuna gegn fátækt í Afríku og tækifærin sem ný tækni skapar í þeim efnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×