Innlent

Fara yfir öryggismál í Soginu

Stangaveiðifélag Reykjavíkur mun á næstunni fara ítarlega yfir öryggismál í Soginu til að reyna að koma í veg fyrir að slys verði í ánni, meðal annars í samráði við Landsvirkjun. Bjarni Júlíusson, formaður félagsins, segir félagið einnig ætla að fara yfir öryggismál almennt í ám landsins og fá til liðs við sig björgunarsveitarmenn og aðra sem til þekkja.

Maðurinn sem drukknaði í Soginu á miðvikudag var vanur stangveiðimaður og sat um tíma í stjórn félagsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×