Rannsaka hvort aukning á vatnsmagni hafi átt þátt í slysi í Soginu 22. september 2007 18:45
Lögreglan á Selfossi rannsakar nú hvort breyting á vatnsrennsli í Soginu þegar meira vatni var hleypt í gegnum Írafossvirkjun hafi haft áhrif á það að mennirnir sem voru þar á veiðum á miðvikudag féllu í ána. Annar mannanna komst við illan leik til lands en hinn er látinn. Eins og fram hefur komið í fréttum þá voru mennirnir tveir, feðgar, að veiðum í Soginu á miðvikudag þegar sonurinn missti fótanna og féll í ána. Faðirinn reyndi þá að bjarga syni sínum en fór sjálfur á flot. Bændur á Bíldsfelli, sem er bær þarna rétt hjá, björguðu syninum en faðirinn fannst látinn í gær. Lögreglan á Selfossi rannsakar nú hvort orsök slyssins megi rekja til þess að breytingar hafi orðið á vatnsrennsli árinnar. Eins og sjá má á línuriti vatnamælinga Orkustofnunar frá því á miðvikudag þá eykst rennsli Sogsins upp úr klukkan fjögur þann dag fram til klukkan sex en einmitt á þeim tíma voru feðgarnir að veiðum í ánni. Það er næstum 10 prósent aukning sem af þeim sem vel þekkja til er þónokkuð. Landsvirkjun staðfestir að rennsli hafi verið aukið í gegnum vélar Írafossvirkjunar skömmu áður en slysið varð til að auka raforkuframleiðslu. Við það hafi vatnyfirborðið hækkað um 6 sentimetra á slysstaðnum. Páll Þór Ármann, framkvæmdarstjóri Stangveiðifélags Reykjavíkur, sem sér um útleigu á veiðileyfum í Soginu sagði í samtali við fréttastofu að þekkt sé að menn lendi í vandræðum þegar vatnsmagn er aukið í ánni. Öll breyting á vatnshæð og vatnsrennsli hafi áhrif á menn sem standa úti í miðri á, með vatn upp að mitti. Hjá Landsvirkjun fengust þær upplýsingar að strax og slysið hafi átt sér stað var farið í að athuga hvort eitthvað óeðlilegt hefði átt sér stað af hálfu við Írafossvirkjun. Sú athugun leyddi það í ljós að í einu og öllu hafi verið farið að settum reglum.
Mest lesið Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Bakslag í vorkomu: Snjóföl og hálka í næstu viku Veður Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Fleiri fréttir Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Sjá meira