Innlent

Veitingamenn funda á eftir

Andri Ólafsson skrifar
Veitingamenn í miðborginni munu hittast klukkan 15:00 í dag á Ölstofu Kormáks og Skjaldar og stofna hagsmunasamtök. Veitingamenn eru margir hverjir orðnir langþreyttir á ummælum lögregluyfirvalda og stjórnmálamanna um ástandið í miðborginni og fyrirhugaðar breytingar á skemmtanalöggjöfinni. Þeir ætla á fundinum að stilla saman strengi sína, velja sér talsmann og hefja samstillta baráttu gegn skerðingu á atvinnufrelsi sínu að sögn heimildarmanns Vísis sem mun sækja fundinn á eftir.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×