Innlent

Ristu upp blaðaböggla

Margir borgarbúar fengu ekki dagblöðin sín í morgun því einhverjir spellvirkjar tóku sig til í nótt, fóru víða um borgina og ristu upp blaðaböggla, sem biðu blaðburðarfólksins.

Síðan sturtuðu þeir úr bögglunum, að líkindum út úr bíl á ferð, því að í sumum hverfum eru nú rifrildi úr dagblöðum út um allt, til mikilla lýta. Lögregla biður þá, sem kynnu að hafa orðið varir við ferðir og athæfi mannanna, að láta sig vita.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×