Varað við krapa á Hellisheiði 15. september 2007 14:00 Svo var umhorfs á Hellisheiðinni rétt fyrir klukkan tvö í dag. MYND/Vefmyndavél Vegagerðarinnar
Vetur konungur hefur heldur betur bankað á dyrnar bæði á Suður- og Norðurlandi, þó einungis með ofankomu sunnan heiða. Lögreglan á Selfossi varar við krapa á Hellisheiði. Það hefur eflaust ekki farið fram hjá vegfarendum í Reykjavík að Esjan er orðin grá og þá er Vífilfellið orðið hvítt niður í hlíðar. Þá er hvítt beggja vegna vegar á HellisheiðI en vegurinn sjálfur ekki hvítur. Hins vegar er krapi á veginum og hvetur lögreglan á Selfossi ökumenn á sumardekkjum til þess að fara varlega á Hellisheiðinni. Þá sé hætta á að hálka myndist á heiðinni þegar líður nær kvöldi og hitinn lækkar. Þá hafa ökumenn haft samband við fréttastofu og segja snjókomu í Þrengslunum. Það var allt annað en sumarlegt á Vík í Mýrdal í hádeginu í dag.MYND/Sigurður Hjálmarsson Víða á Suðurlandi er hvítt yfir að líta og samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands var slydda á Höfn í Hornafirði, snjókoma á Fagurhólsmýri og slydda á Kirkjubæjarklaustri og í Vík í Mýrdal á hádegi. Þá er enn fremur hvasst við suðurtröndina en engar fregnir hafa borist af óhöppum. Veðurstofan gerir ráð fyrir úrkomu á Suðurlandi í dag en hins vegar léttir til á morgun. Hitinn hækkar hins vegar ekki fyrr en eftir helgi. Á Norðurlandi hefur ekki verið úrkoma en frost fór niður í sjö stig í Ásbyrgi í nótt sem telst nokkuð óvenjulegt á þessum árstíma þótt ekki liggi fyrir hvort um metkulda sé að ræða.
Mest lesið Eldur kviknaði á Völlunum Innlent Ísraelsher viðurkennir að hafa skotið fimm ára stúlku Erlent Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Innlent Vaxtahækkunin geti gert illt verra Innlent „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Innlent Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Innlent Sammála því að erfitt haust sé í vændum Innlent Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ Innlent Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Innlent Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Innlent Fleiri fréttir Eldur kviknaði á Völlunum Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sammála því að erfitt haust sé í vændum Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Samþykkti samninginn: „Lágmark að láta fjármagn fylgja“ Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Fjármálaráðherra og vinnumarkaðurinn bregðast við vaxtahækkun SVÞ og netáfengisverslanir skora á Alþingi Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Gæsluvarðhald framlengt yfir meintum Kársnesmorðingjum Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Gæti séð fyrir sér að kjarasamningar haldi Hafi byrlað tólf ára fósturdóttur og nauðgað ítrekað Vilja banna frjáls ferðalög ísraelskra ferðamanna á Íslandi Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Brotin úr jakanum geti valdið flóðbylgju Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ „Jón Sigurðsson nefndi aldrei sjálfstæði“ Stýrivextir hækka og borgarísjaki í Djúpinu Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Maríjon aðstoðar þingmenn Sjálfstæðisflokksins Lítið jökulhlaup hafið í Múlakvísl Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Sjá meira