Kjötkrókur dæmdur í skilorð 14. september 2007 12:15 MYND/Heiða
Héraðsdómur Suðurlands dæmdi í dag karlmann í þrettán mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að stela hangikjötslæri úr Bónus. Maðurinn var á skilorði fyrir brotið en vegna þess að hann þykir hafa komið lífi sínu á réttan kjöl eftir töluvert langan brotaferil þótti dómara rétt að dæma manninn aftur í skilorðsbundið fangelsi í stað þess að loka hann inni. Maðurinn rændi úrbeinuðu hangikjötslæri um hádegisbil þann 20. janúar síðastliðinn í verslun Bónus í Hveragerði. Hann játaði sök greiðlega en verjandi hans krafðist vægustu refsingar sem völ væri á. „Fyrir dóminum upplýsti ákærði að hann hefði tekist á við áfengisvanda sem hann átti við að stríða en afbrot hans hefðu tengst misnotkun á áfengi," segir í dómsuppkvaðningunni. „Hann hafi farið í áfengismeðferð í febrúar sl. Þá hafi hann ásamt sambýliskonu sinni tekið bújörð á leigu á Austurlandi til eins árs frá 1. apríl 2007 og hafi gert samning um þátttöku í landshlutaverkefni í skógrækt. Fyrir liggi að þau geti framlengt leigusamninginn um jörðina og haldið verkefninu áfram," segir einnig.´ Þá er bent á að ákærði sé að vinna að því að fá kvöð vegna riðu aflétt af jörðinni til að geta aukið við búskapinn. Kvað ákærði að honum liði vel þar sem þau byggju núna og hygðu þau á frekari búskap. Lagði ákærði fram gögn máli sínu til stuðnings. Þá mun ákærði ásamt sambýliskonu sinni eiga von á barni. Verjandi sagði verulega röskun verða á lífi fjölskyldunnar og þeim árangri sem ákærði hafi náð við að snúa aftur til betra lífs, yrði honum gert að sæta fangelsi fyrir brot sitt. Dómari tók undir þetta en í ljósi þess að þetta var í þriðja sinn frá 2004 sem maðurinn er dæmdur fyrir þjófnað þótti dómara hæfilegt að dæma hann í skilorðsbundið fangelsi.
Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Erlent Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Innlent Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Veður Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Erlent Fleiri fréttir „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Sjá meira