Innlent

Kjötkrókur dæmdur í skilorð

MYND/Heiða

Héraðsdómur Suðurlands dæmdi í dag karlmann í þrettán mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að stela hangikjötslæri úr Bónus. Maðurinn var á skilorði fyrir brotið en vegna þess að hann þykir hafa komið lífi sínu á réttan kjöl eftir töluvert langan brotaferil þótti dómara rétt að dæma manninn aftur í skilorðsbundið fangelsi í stað þess að loka hann inni.

Maðurinn rændi úrbeinuðu hangikjötslæri um hádegisbil þann 20. janúar síðastliðinn í verslun Bónus í Hveragerði. Hann játaði sök greiðlega en verjandi hans krafðist vægustu refsingar sem völ væri á. „Fyrir dóminum upplýsti ákærði að hann hefði tekist á við áfengisvanda sem hann átti við að stríða en afbrot hans hefðu tengst misnotkun á áfengi," segir í dómsuppkvaðningunni.

„Hann hafi farið í áfengismeðferð í febrúar sl. Þá hafi hann ásamt sambýliskonu sinni tekið bújörð á leigu á Austurlandi til eins árs frá 1. apríl 2007 og hafi gert samning um þátttöku í landshlutaverkefni í skógrækt. Fyrir liggi að þau geti framlengt leigusamninginn um jörðina og haldið verkefninu áfram," segir einnig.´

Þá er bent á að ákærði sé að vinna að því að fá kvöð vegna riðu aflétt af jörðinni til að geta aukið við búskapinn. Kvað ákærði að honum liði vel þar sem þau byggju núna og hygðu þau á frekari búskap. Lagði ákærði fram gögn máli sínu til stuðnings. Þá mun ákærði ásamt sambýliskonu sinni eiga von á barni.

Verjandi sagði verulega röskun verða á lífi fjölskyldunnar og þeim árangri sem ákærði hafi náð við að snúa aftur til betra lífs, yrði honum gert að sæta fangelsi fyrir brot sitt. Dómari tók undir þetta en í ljósi þess að þetta var í þriðja sinn frá 2004 sem maðurinn er dæmdur fyrir þjófnað þótti dómara hæfilegt að dæma hann í skilorðsbundið fangelsi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×