Leggja niður framkvæmdasvið og stofna eignasjóð 30. ágúst 2007 13:02
Til stendur að leggja niður framkvæmdasvið borgarinnar og koma á fót umhverfis- og samgöngusviðið sem lið í breytingum á stjórnkerfi borgarinnar. Það var borgarstjórinn í Reykjavík sem kynnti breytingarnar í hádeginu. „Það er fyrst og fremst verið að gera þessar breytingar til þess að gera stjórnsýsluna á þessu sviði skýrari og markvissari. Hún hefur verið afskaplega óljó," segir Vilhjálmur Vilhjálmsson borgarstjóri um breytingarnar. Vilhjálmur segir breytingarnar tvenns konar. Annars vegar er verið að stofna eignasjóð sem fer með allar eignir borgarinnar, meðal annars rekstur og viðhald eigna og lands. „Viðhald til dæmis opinna svæða og leiksvæða og göngustíga hefur svolítið þvælst á milli, aðallega opinna svæða og leiksvæða Borgarbúar þekkja það að mörg þessara svæða eru ekki til sóma og margir gangstígar eru illa farnir. Nú verður þetta allt sett undir ábyrgð eignasjóðsins og framkvæmdasviðið verður þar með lagt niður," segi Vilhjálmur og boðar stórátak í endurnýjun göngustíga og skólalóða meðal annars. „Þetta kostar mörg hundruð milljónir að takast á við þetta vegna þess að þetta hefur verið í vanrækslu í áratugi," segir hann enn fremur. Hin breytingin felst í því að samgönguþáttur borgarinnar verður færður til umhverfissviðs. Til verður umhverfis- og samgöngusvið. „Þar með erum við að leggja áherslu á umhverfismálin og segja að samgöngumál eru umhverfismál," segir Vilhjálmur og bendir á að sviðið annist undirbúning og hönnun umferðarmannvirkja og hafi samráð við íbúa þar um. Þetta sé í takt við nýjar hugmyndir borgarinnar um hin grænu skref. Aðspurður hvort tilkoma eignasjóðs þýði að borgin fari að selja eignir í meira mæli og leigja í stað húsnæði segir Vilhjálmur að svo sé ekki. Eignasjóður muni áfram halda utan um byggingu leikskóla og grunnskóla. Vilhjálmur segir að breytingarnar hafi verið kynntar vel fyrir starfsmönnum sviðanna sem breytingarnar nái til og ekki komi til uppsagna vegna þeirra.
Mest lesið Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Innlent Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla Innlent „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Innlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Fleiri fréttir Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Sjá meira