Leiðin verið torsótt og grýtt 28. ágúst 2007 17:53 Allar líkur eru á því að Hermann Jónasson hafi verið faðir Lúðvíks.
Lúðvík Gizurarson hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem hann fagnar því að barnsfaðernismálinu sem hann höfðaði fyrir þremur árum fari nú að ljúka. Hann segir niðurstöðuna ekki hafa komið sér á óvart, hún sé aðeins staðfesting á því sem móðir hans sagði alla tíð. Lúðvík segir líka að leiðin að niðurstöðunni hafi verið torsótt og grýtt. Samkvæmt niðurstöðum rannsókna sem bárust í dag eru 99,9 prósent líkur á því að Hermann Jónasson, fyrrum forsætisráðherra, hafi verið faðir Lúðvíks. Yfirlýsing Lúðvíks fer hér á eftir í heild sinni: „Í dag fékk ég í hendur niðurstöðu mannerfðafræðilegrar rannsóknar á lífsýnum úr móður minni, Hermanni Jónassyni og blóðsýni úr mér. Samkvæmt niðurstöðunni eru 99,9% líkur á því að Hermann Jónasson hafi verið faðir minn. Eftir þessari niðurstöðu hef ég beðið lengi en leiðin að henni hefur verið bæði torsótt og grýtt. Niðurstaðan kom mér hins vegar ekki á óvart. Hún var staðfesting þess sem móðir mín sagði mér alla tíð um faðerni mitt, alveg frá því að ég man fyrst eftir mér. Samkvæmt 1. gr. barnalaga á barn rétt á að þekkja báða foreldra sína. Ákvæðið byggir á samningi Sameinuðu þjóðanna um éttindi barnsins. Ég hef frá því að ég hóf þennan málarekstur litið svo á að það væru mannréttindi mín og barna minna að vita sannleikann um faðerni mitt, jafnvel þótt ég hafi kosið að hefjast ekki handa í þeirri leit fyrr en á gamals aldri. Enda eru engir málshöfðunarfrestir í málum af þessu tagi í barnalögum. Ég gleðst yfir því að barnsfaðernismálinu sem ég höfðaði fyrir réttum þremur árum, til að fá það dæmt að Hermann Jónasson væri faðir minn, fer nú að ljúka. Ég er óendanlega þakklátur öllum þeim sem hafa stutt mig í þessum málarekstri." Reykjavík, 28. ágúst 2007 Lúðvík Gizurarson hrl.
Mest lesið Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Erlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Innlent Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Innlent Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Innlent Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla Innlent Fleiri fréttir Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Sjá meira