Frá Royal Albert Hall til Íslands 23. júlí 2007 12:19 Peter Kooij
Þrír af aðalgestum Kirkjulistahátíðar koma fram á tónleikum í tónleikaröðinni „BBC Proms" í Royal Albert Hall aðeins örfáum dögum áður en þeir koma til landsins og taka þátt í flutningi á h-moll messunni eftir Bach við opnun Kirkjulistahátíðar í Hallgrímskirkju 11.ágúst. Robin Blaze, kontratenór, Peter Kooij, bassi og Gerd Türk, tenór, hafa allir haslað sér völl í hópi fremstu flytjenda barokktónlistar í heiminum og á tónleikunum í Royal Albert Hall flytja þeir verk eftir Bach ásamt sópransöngkonunni Carolyn Sampson og Bach Collegium Japan undir stjórn Masaaki Suzuki. Það þykir mikill heiður að fá að taka þátt í „BBC Proms" tónleikaröðinni sem á að baki 111 ára sögu og hafa margir af virtustu og þekktustu tónskáldum og tónlistarfólki sögunnar komið þar fram í gegnum tíðina. Íslenskum tónlistarunnendum gefst einstakt tækifæri til að sjá þessa þrjá stórkostlegu söngvara flytja eitt stórbrotnasta verk tónlistarsögunnar á Kirkjulistahátíð í ágúst. Aðeins nokkrum dögum eftir tónleikana í Royal Albert Hall koma þeir félagar fram á opnunartónleikum Kirkjulistahátíðar í Hallgrímskirkju en þar taka þeir þátt í flutningi á h-moll messunni eftir Bach ásamt sópransöngkonunni Moniku Frimmer, Mótettukór Hallgrímskirkju og Alþjóðlegu barokksveitinni í Den Haag undir stjórn Harðar Áskelssonar. Robin Blaze syngur einnig einsöng í óratóríunni Ísrael í Egyptalandi eftir Handel sem verður frumflutt á Íslandi á Kirkjulistahátíð í Skálholti 17. ágúst. Að auki leiðbeinir hann íslenskum söngvurum í flutningnum á verkinu. Kirkjulistahátíð fer fram í ellefta skipti 11.-19. ágúst. Dagskráin sem fer að þessu sinni fram bæði Hallgrímskirkju og í Skálholti hefur aldrei verið viðameiri. Á fjórða hundrað listamanna tekur þátt í hátíðinni sem spannar allar tegundir listgreina. Einkunarorð hátíðarinnar í ár eru úr Lofsöng Móse og Ísraelsmanna í Exodus, annarri Mósebók, „Ég vil lofsyngja Drottni" og tengjast beint óratóríu Handels, Ísrael í Egyptalandi, sem flutt verður bæði í Skálholtsdómkirkju og Hallgrímskskirkju.
Mest lesið Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum Lífið Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Lífið „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Lífið „Auðveldara hér að vera bara eins og maður er“ Tíska og hönnun Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Lífið Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Lífið Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Lífið Vill helst brenna myndir frá unglingsárunum Tíska og hönnun Grafinn í sand í sólarhring Lífið Fjörður og mynd um áhrif innrásar Rússa verðlaunuð í Cannes Menning Fleiri fréttir Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins „Ógeðslega flókinn tími í lífi fólks“ Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Hvað veistu um... flugvelli? Vignir Vatnar opnar sig um sjálfsvígshugsanir Lygilega erfið þrautabraut Nemendur í Seljaskóla graffa 56 metra listaverk við skólann Fyrrverandi þingmaður selur í Laugardalnum Eyþór og Ástríður eignuðust lítinn Arnalds Þurfti hjálp við að anda og lítið var um svör Kvikmyndagerðarmenn framtíðarinnar í fíling Frumsamin kórverk í heimabruggi bílskúrsbands Ari Edwald og Ingibjörg keyptu súkkulaðihöllina Naglbíts-barn á leiðinni Sólveig Anna og Marta María léku á als oddi og Óli tottaði vindil Sjá meira