Lífið

Emilía hætt í Nylon

Emilía er önnur frá vinstri
Emilía er önnur frá vinstri

Emilía Björg Óskarsdóttir hefur ákveðið að segja skilið við hljómsveitina Nylon. Emilía hefur verið ein fjögurra söngkvenna flokksins síðan hann var stofnaður af Einari Bárðarsyni árið 2004. Ástæður brothvarfsins segir Emilía vera mikið álag og fjarveru frá fjölskyldunni sem fylgir lífinu í Nylon. Hún kveðst þó ánægð með tíma sinn í Nylon.

Flokkurinn mun þrátt fyrir allt halda sínu striki og verður ný söngkona ráðin í stað Emilíu. Nylon hyggur á tónleikaferðalag um England á næsta ári.

Í águst hefjast áheyrnarprufur fyrir nýja söngkonu. Sagafilm og Stöð 2 hafa gert samkomulag við Nylon um framleiðslu sjónvarpsþáttaraðar um leitina að nýrri söngkonu. Sýningar þáttanna hefjast í haust á Stöð 2 og Sirkus.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.