Freistingar til misnotkunar innbyggðar í kvótakerfið 8. maí 2007 18:30
Einar K Guðfinsson sjávarútvegsráðherra segir ákveðnar freistingar til misnotkunar byggðar inn kvótakerfið og taka beri allar ábendingar um svindl í kerfinu alvarlega. Magnús Þór Hafsteinsson fulltrúi Frjálslyndaflokksins í sjávarútvegsnefnd Alþingis vill að nefndin komi saman fyrir kosningar, vegna ásakana um stórfellt svindl í kvótakerfinu sem greint var frá í Kompási s.l. sunnudag. Magnús Þór Hafsteinsson segir nauðsynlegt að sjávarútvegsnefnd komi saman af tveimur ástæðum. Annars vegar vegna væntanlegrar veiðiráðgjafar Hafrannsóknarstofnunar, þar sem allt bendi til tillagna um stórfelldan niðurskurð í þorsk og ýsuveiðum, sem stofnunin og sjávarútvegsráðherra þurfi að svara fyrir. Hin ástæðan fyrir því að Magnús Þór vill fund í sjávarútvegsnefnd er frásögn fréttaskýringaþáttarins Kompáss á Stöð 2 s.l. sunnudag, þar sem greint var frá stórfelldu svindli í kvótakerfinu. Einar K Guðfinsson sjávarútvegsráðherra segir að fréttir um stórfellt kvótasvindl slái sig illa reynist þær vera sannar, því menn eigi að fara eftir settum reglum í fiskveiðum eins og öðrum reglum í þjóðfélagninu. En það fyrirkomulag að hafa einungis úrtaksviktun á afla, geti falið í sér freistingar til misnotkunar. Magnús Þór segir svindl í kvótakerfinu skekkja alla veiðiráðgjöf og það sé ekki einleikið hvað illa gangi að byggja upp þorskstofninn. Aðeins örfáir dagar eru til kosninga en Magnús Þór telur engu að síður mikilvægt að sjávarútvegsnefnd komi saman fyrir kosningar. Kjósendur eigi rétt á að vita stöðu mála í þessu kerfi sem stjórnvöld hafi hampað undanfarin rúman áratug. Sjávarútvegsráðherra segist telja að í meginatriðum sé eftirlitskerfið í sjávarútvegi skilvirkt. Hins vegar gefi allar vísbendingar um svindl í kerfinu ástæðu til að skoða málin.
Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Erlent Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Fleiri fréttir Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sjá meira