Ekki ákveðið hvenær skipað verður í embætti ríkissaksóknara Björn Gíslason skrifar 8. maí 2007 15:01
Björn Bjarnason dómsmálaráðherra hefur ekki ákveðið hvenær skipað verður í embætti ríkissaksóknara og segist eiga eftir að fara betur yfir umsóknir um embættið. Einn umsækjenda hefur dregið umsókn sína til baka. Umsóknarfrestur um embættið rann út þann 27. apríl og sóttu fimm manns um það. Það voru hæstaréttarlögmennirnir Brynjar Níelsson og Jóhannes Rúnar Jóhannsson, saksóknararnir Egill Stephensen og Sigríður Friðjónsdóttir og Jón H.B. Snorrason, aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu og fyrrverandi saksóknari efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglustjóra. Allir umsækjendur voru boðaðir í viðtal í síðustu viku hjá dómsmálaráðherra sem skipar í embættið og þar kom fram að ákvörðun um það hver fengi embættið yrði tekin öðru hvorum megin við helgi. Á föstudag fengu svo umsækjendur skilaboð um það að frestað yrði að skipa í embættið um ótiltekinn tíma en engar frekari skýringar voru gefnar. Á sunnudaginn tók svo Jóhannes Rúnar Jóhannsson þá ákvörðun að draga umsókn sína til baka. Í samtali við fréttastofu sagðist hann ekki myndu greina frá því hvers vegna hann hefði gert það. Björn Bjarnason dómsmálaráðherra sagði í samtali við fréttastofu nú eftir hádegið að hann hefði greint frá því á fundunum með umsækjendunum að ákvörðun um skipun í embættið yrði tekin öðru hvorum megin við helgi. Síðar hefði komið í ljós að fara þyrfti betur yfir umsóknirnar og það myndi hann gera til að fullnægja góðum stjórnsýslukröfum. Þá væru ýmis önnur verkefni sem hann hefði þurft að sinna. Aðspurður sagðist hann ekki geta sagt til um hvenær skipað yrði í embættið.
Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Erlent Fleiri fréttir Staðfesta rúmlega áttatíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Sjá meira