Innlent

Kona slasast á fæti í Botnssúlum

Undanfarar björgunarsveitanna af höfuðborgarsvæðinu og af Akranesi voru kallaðir út kl 14.30 vegna konu sem slasaðist á fæti í Botnsúlum. Einnig voru kallaðir út sjúkraflutningamenn frá Akranesi svo og þyrla landhelgisgæslunnar.

Björgunarsveitir komu að konunni og 14 manna hóp sem var í fylgd með henni um kl 16.00. Þyrla gæslunnar var í öðru verkefni en kom á vettvang um kl.16.30.

Ekki var hægt að lenda þyrlunni á staðnum og var konan því hífð upp í þyrluna. Þyrlan flutti konuna á Landspítalann Háskólasjúkrahús í Fossvogi. Aðgerðum var stjórnað úr samhæfingarstöð af Svæðisstjórn björgunarsveita og tóku um 50 manns þátt í aðgerðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×