Vonast til að auglýsing eftir staðgöngumóður verði til hagsbóta 1. maí 2007 19:09
Konan sem auglýsti eftir staðgöngumóður, segist gera það í kjölfar læknamistaka. Hún vonast til að umræðan um hennar mál leiði til lagabreytinga, öðrum til hagsbóta. Par auglýsti í Morgunblaðinu 22. apríl síðastliðinn eftir staðgöngumóður, að fósturvísir frá parinu yrði notaður. Þar sem slíkt væri ekki löglegt hér á landi, yrði að gera aðgerðina erlendis. Þórður Óskarsson læknir og sérfræðingur hjá Art Medica sagði í fréttum Stöðvar 2 þann dag að hann væri þeirrar skoðunar að ekki væri rétt að taka fyrir þann möguleika að fólk geti eignast barn með þessum hætti og benti á að fyrir sum pör væri þetta eini möguleikinn. Konan sem auglýsti eftir staðgöngumóðurinni sagði í samtali við Stöð 2 að þau hefðu ákveðið að reyna þessa leið eftir að mistök hafi verið gerð við fæðingu sonar þeirra hjóna, en þau leiddu til þess að leg konunnar var fjarlægt í kjölfarið. Að auglýsa eftir staðgöngumóður hafi verið einn möguleiki fyrir þau til að eignast fleiri börn. Hún sagðist vonast til að sú umræða sem varð í kjölfar auglýsingarinnar verði til þess að lögum um þetta verði breytt og muni því nýtast öðrum pörum sem eru í sömu aðstöðu og þau, í framtíðinni. Hún segist hafa fengið góð viðbrögð við auglýsingunni, og vilja hjónin þakka þeim sem sýndu málinu áhuga og tóku þátt í umræðu um það. Konan segir ekkert hafi verið ákveðið eða frágengið um framhaldið. Varðandi hvar aðgerðin yrði gerð, nefndi hún Grikklandi sem möguleika, en þar væri væru svona aðgerðir heimilar.
Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Fleiri fréttir „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið Sjá meira