Heilbrigðiskerfið að brenna til kaldra kola 1. maí 2007 14:12 MYND/365
Grunnstoðir heilbrigðiskerfisins eru að brenna til kaldra kola og ekki verður lengur við neitt ráðið. Þetta kom fram í ræðu Kristínar Á. Guðmundsdóttur, formanns Sjúkraliðafélags Íslands, á fyrsta maí hátíðahöldunum á Ingólfstorgi í Reykjavík í dag. Hún sagði heilbrigðiskerfið vera í molum. Í ræðu sinni varaði Kristín við þeirri þróun að kjarasamningar séu færðir frá stéttarfélögunum í hendur launafólks. Þetta kerfi henti atvinnurekendum betur og hafi skilað litlum árangri fyrir launafólk. Þá gagnrýndi hún launaleynd og sagði hana öllum til óþurftar. Kristín sagði í ræðu sinni að á undanförnum árum hafi nýfrjálshyggjan sótt að verkalýðshreyfingunni með það að markmiði að veikja samstöðuna. Benti hún á að verkalýðshreyfingin hefði miklu áorkað í áranna rás og sá árangur hefði aðeins náðst með samstöðu verkafólks. Þá lagði Kristín fram fimm kröfur um bætt réttindi og betri lífskjör. Í fyrsta lagi að jafna skuli laun karla og kvenna. Í öðru lagi að tryggja jafnrétti til náms. Í þriðja lagi stórlækkun á skatti sem tekinn er af lífeyrisþegum. Í fjórða lagi endurskoðun á vinnutíma vaktafólks og í fimmta lagi að fátækt verði útrýmt. Þá sagði Kristín að þrátt fyrir yfirlýsingar ráðamanna um að heilbrigðiskerfið væri glæsilegt töluðu staðreyndirnar öðru máli. Sagði hún meðal annars manneklu valda því að biðraðir séu eftir sjúkraplássum og að aldraðir fái ekki hjúkrun við hæfi. Líkti hún ástandinu við eldsvoða sem ekkert fær stöðvað. „Heilbrigðiskerfið er að hruni komið. Grunnstoðir heilbrigðiskerfisins eru að brenna til kaldra kola." Að lokum hvatti Krístin verkafólk til að standa vörð um almannaþjónustuna og halda áfram baráttunni fyrir jöfnuði, jafnrétti og réttlæti.
Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Fleiri fréttir Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Sjá meira