Þingmaður Sjálfstæðisflokksins óttast afskiptasemi forseta Íslands 1. maí 2007 11:37
Full ástæða er til þess að hafa áhyggur af því að forseti Íslands muni skipta sér af stjórnarmyndun eftir komandi kosningar að mati Ástu Möller, þingmanns Sjálfstæðisflokksins. Þetta kemur fram á bloggsíðu þingmannsins. Á heimasíðu sinni vísar Ásta til Reykjavíkurbréfs Morgunblaðsins frá því síðasta sunnudag þar sem þeirri hugmynd er velt fram að Ólafur Ragnar Grímsson muni mögulega reyna hafa áhrif á stjórnarmyndun eftir kosningar. Segir Ásta hugsanlega virka íhlutun forseta Íslands í stjórnarmyndun vera áhyggjuefni og ógnun við lýðræðið í landinu. Hún segir mikilvægt að allt frumkvæði í stjórnarmyndun verði á höndum forystumanna flokkanna, án afskipta og íhlutunar forsetans. „Eftir að forsetinn greip inn í varðandi fjölmiðlalögin finnst mér full ástæða til að hafa áhyggjur af því að hann fari aftur út fyrir sitt valdsvið," sagði Ásta í samtali við Vísi. „Forsetinn á að mínu mati að miðla málum en ekki vera með afskipti." Ásta Möller var boðið í viðtal á Stöð 2 vegna málsins nú í dag. Í fyrstu samþykkti þingmaðurinn boðið en hringdi skömmu síðar og afboðaði. Taldi hún ekki rétt að tjá sig meira um málið að svo stöddu. Sjá má ummæli Ástu á heimasíðu hennar hér.
Mest lesið Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent Býr sig undir það versta en vonar það besta Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Innlent Fleiri fréttir „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Vilja verja pláss íslenskra sjómanna Sjá meira