Erum bara að slökkva elda 30. apríl 2007 16:44 Egilsstaðir. MYND/365
Alls vantar 18 starfsmenn á sjúkrahús Egilsstaða til að fullmanna allar vaktir að sögn fulltrúa framkvæmdastjóra Heilbrigðisstofnunar Austurlands. Ákveðið hefur verið að loka á allar innlagnir á sjúkrahúsið frá og með 11. maí næstkomandi. Sjúklingar verða þess í stað fluttir til Akureyrar, Reykjavíkur eða Norðfjarðar. „Við erum bara að slökkva elda," sagði Þórhallur Harðarson, fulltrúi framkvæmdastjóra Heilbrigðisstofnunar Austurlands, í samtali við Vísi. „Við erum búnir að reyna gríðarlega mikið að fá starfsfólk en án árangurs. Við höfum jafnvel boðist til að borga flug fyrir fólk fram og til baka." Framkvæmdaráð Heilbrigðisstofnunar Austurlands á Egilsstöðum ákvað í dag að loka fyrir allar innlagnir á sjúkrahúsið á Egilsstöðum frá og með föstudeginum 11. maí næstkomandi. Engin afleysing hefur fengist fyrir sjúkraliða og hjúkrunarfræðinga í sumar og því er gripið til þessa úrræðis. Þetta er ekki fyrsta skiptið sem gripið er til þessa ráðs því í fyrrasumar var lokað fyrir innlagnir á spítalann í sex vikur. Að sögn Þórhalls er ástandið afar alvarlegt enda ljóst að flytja verður sjúklinga annað eftir að þeir hafa hlotið aðhlynningu á spítalanum. Til Akureyrar, Reykjavíkur eða fjórðungssjúkrahússins á Norðfirði. „Við getum ekki haldið úti heilum vöktum með ófaglært starfsfólk." Þórhallur segir spítalann hafa reynt að kaupa frí af starfsfólki til að halda úti vöktum. Mikið álag hafi hins vegar verið á starfsfólki og það þurfi hvíld. „Það er mikil yfirvinna á því fólki sem nú er að vinna og þetta fólk þarf að hvílast." Frá árinu 2004 hefur íbúum í Fljótsdalshéraði fjölgað um 1.200 eða úr 3.364 manns í 4.737 samkvæmt tölum Hagstofunnar. Frá árinu 2002 hefur fjöldi lækna í héraðinu hins vegar staðið í stað og eru þeir nú fjórir talsins. Alls vinna 92 starfsmenn á sjúkrahúsinu á Egilsstöðum. Framkvæmdaráð Heilbrigðisstofnunar Austurlands mun endurskoða ákvörðun sína ef forsendur breytast.
Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Fleiri fréttir „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Sjá meira