Lokuðu fyrirvaralaust salernisaðstöðu bílstjóranna 30. apríl 2007 11:19 MYND/VG
Bílstjórar hjá leigubílastöðinni BSH í Hafnarfirði segjast hafa verið beittir órétti eftir að eigendur stöðvarinnar brugðu á það ráð að loka fyrirvaralaust hvíldar- og salernisaðstöðu bílstjóranna síðastliðinn laugardag. Formaður bílstjórafélagsins Fylkir segir að með þessu séu eigendurnir að ná sér niðri á bílstjórunum en þeir hafa allir sagt upp hjá stöðinni. Einn eigandi leigubílastöðvarinnar BSH segir málið byggt á misskilningi. „Þegar við komum eftir hádegi á laugardaginn var búið að loka allri aðstöðu," sagði Ingólfur Möller Jónsson, leigubílstjóri og formaður Bílstjórafélagsins Fylkir, í samtali við Vísi. „Það stóð bara lokað vegna breytinga og hefur verið lokað síðan þá." Nánast allir leigubílstjórar hjá BSH sögðu upp störfum hjá fyrirtækinu í byrjun marsmánaðar eftir að nýir eigendur tóku við rekstri stöðvarinnar. Voru bílstjórarnir ekki sáttir við eigendaskiptin og ákváðu þess í stað að stofna eigin leigubílastöð, Aðalstöðin-BSH. Sú stöð tekur til starfa þegar uppsagnarfrestur bílstjóranna rennur út á morgun. Ingólfur segir bílstjórana eiga rétt á aðstöðunni þangað til uppsagnarfrestur þeirra rennur út. Þeir séu búnir að greiða húsaleigu enda sé hún hluti af gjöldum bílstjóranna til stöðvarinnar. Hann segir þó ólíklegt að þeir muni kæra málið. „Okkur finnst þetta fyrst og fremst hlægilegt. Við höfum ekki hugsað okkur að taka þátt í þessu stríði. Þetta er aðallega eigendum BSH til vansa." Einar Ágústsson, einn eigandi BSH leigubíla, sagði í samtali við Vísi málið ekki tengjast uppsögnum leigubílstjóra. Unnið sé að uppsetningu öryggiskerfis og því hafi þurft að loka aðstöðunni tímabundið. „Við erum að setja upp öryggiskerfi til að tryggja meðal annars öryggi starfsfólks. Þetta hefur ekkert með þessar uppsagnir að gera."Að sögn Einars verður aðstaðan opnuð aftur á miðvikudaginn.
Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Fleiri fréttir „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Sjá meira