Samkrull borgaralegra og hernaðarlegra þátta varhugavert 26. apríl 2007 13:31 MYND/GVA
Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG og fulltrúi flokksins í utanríkismálanefnd, gerir alvarlegar athugasemdir við öll vilyrði í nýgerðu samkomulagi Íslendinga við Norðmenn og samstarfsyfirlýsingu við Dani um öryggismál sem gefin eru af hálfu Íslendinga um aukinn kostnað sem fellur á Íslendinga. Í bókun gerir hann einnig athugasemdir við „samkrull borgaralegra og hernaðarlegra þátta, sem greinilega er verið að boða," sem hann segir afar varhugavert. Bókun Steingríms fer hér á eftir: „Undirritaður, fulltrúi þingflokks Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í utanríkismálanefnd, er því að sjálfsögðu fylgjandi að við ræktum gott samband við frænd- og grannþjóðir okkar Norðmenn og Dani eins og hinar vestnorrænu og norrænu þjóðirnar. Náin og góð samvinna á stjórnmálasviðinu eins og sú sem fram fer á vettvangi Norðurlandaráðs og norræna Ráðherraráðsins er sjálfsögð og sama gildir um samstarf á sviði björgunarmála og þvíumlíkt. Öðru máli gegnir um margt það sem boðað er í fyrirhuguðu samkomulagi við Noreg á sviði öryggismála, varnarmála og viðbúnaðar og yfirlýsingu um svipaða hluti með Dönum. Undirritaður gerir í fyrsta lagi alvarlegar athugasemdir við og hefur fyrirvara á um öll vilyrði sem gefin eru um aukinn kostnað sem Ísland komi til með að bera í væntanlegu samkomulagi við Norðmenn annars vegar og samstarfsyfirlýsingu við Dani hins vegar. Ekkert liggur fyrir um að réttlætanlegt sé, né að það þjóni hagsmunum Íslendinga, að fara að halda uppi erlendum herjum eða aðilum við óþarfar og jafnvel varhugaverðar heræfingar á íslensku yfirráðasvæði og bera af því umtalsverðan kostnað. Við blasir að spyrja hvort slíkum fjármunum væri ekki betur varið í að efla okkar eigin borgaralegu gæslu- og björgunarstarfsemi. Aukið samkrull borgaralegra og hernaðarlegra þátta, sem greinilega er verið að boða, er afar varhugavert. Því má undir engum kringumstæðum gleyma að Landhelgisgæslan íslenska er ekki her heldur borgaralegur gæslu-, eftirlits- og björgunaraðili. Þá gerir undirritaður alvarlegar athugasemdir við heimildir sem virðist standa til að veita nágrönnum okkar, einkum Norðmönnum, til umsvifa hér á landi og í lögsögu Íslands með vísan til þess að þeir eru ekki aðeins nágrannar og samstarfsaðilar heldur einnig keppinautar okkar og gagnaðilar í deilum. Við slíkar aðstæður hafa Norðmenn oft reynst býsna harðdrægir í sinni hagsmunagæslu, jafnt þó Íslendingar ættu í hlut sem aðrir. Norðmenn munu örugglega hér eftir sem hingað til reyna að færa út og styrkja áhrifasvæði sitt í norðurhöfum og má benda á reynslu af samskiptum við þá hvað varðar alþjóðleg hafsvæði eða smugur, Svalbarða og Jan Mayen sem dæmi. Jafnframt lýsir undirritaður áhyggjum yfir, og setur skýran fyrirvara við, ef þessi gjörningur leiðir til þess að innlend starfsemi, einkum Landhelgisgæsla, lögregla og björgunarsveitir, verði síður efld að fjárveitingum, mannafla og tækjakosti en ella yrði. Loks lýsir undirritaður sig algerlega andvígan hvers kyns heræfingarbrölti á Íslandi og á íslensku yfirráðasvæði hvort sem Norðmenn, Danir eða aðrir eiga í hlut. Það er sjálfsögð stefna af okkar hálfu að halda öllu slíku og tilheyrandi ónæði, mengun og mengunarhættu eins fjarri Íslandi, lofthelgi okkar og efnahagslögsögu og kostur er. Allt slíkt brölt samrýmist illa friðar- og vopnleysisarfleifð þjóðarinnar. Það er mjög miður að nú skuli rokið til og stafir settir undir slíkt samkomulag eða yfirlýsingar, jafnvel þó ekki sé um þjóðréttarskuldbindingar að ræða, án undangenginnar umræðu í þjóðfélaginu, stefnumótunar og meiri aðkomu Alþingis og vandaðri undirbúnings almennt. Eins má spyrja hvort eðlilegt sé að ráðherra eða ríkisstjórn sem er á síðustu embættisdögum sínum fyrir kosningar sé að ganga frá slíkum málum í stað þess að þau verði til lykta leitt í krafti nýs þingmeirihluta að loknum kosningum. Alþingi 24. apríl 2007 Steingrímur J. Sigfússon"
Mest lesið „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið Innlent Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Ósáttur við skilyrðin Erlent „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Innlent Konan komin í leitirnar Innlent Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Fleiri fréttir „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Sjá meira