Mannekla og ófullnægjandi húsakostur hamlar starfsemi Landspítalans 26. apríl 2007 14:15 MYND/GVA
Mannekla og og ófullnægjandi húsakostur hefur hamlað starfsemi Landspítalans háskólasjúkrahúss að sögn Birnu Kr. Svavarsdóttur, formanns stjórnarnefndar Landspítalans háskólasjúkrahúss. Þetta kom fram í ræðu hennar á ársfundi spítalans sem haldinn er í dag. Hún segir nauðsynlegt í ljósi breyttra aðstæðna í samfélaginu að skoða fleiri möguleika við fjármögnun og framkvæmd. Í ræðu sinni sagði Birna aðstæður á spítalanum oft erfiðar og til dæmis gengi afar illa að manna í sérhæfð störf. Skortur sé á hjúkrunarfræðingum og sjúkraliðum og oft ekki hægt að halda úti fullri starfsemi á deildum spítalans vegna manneklu. Þá spilar þensla og launasamkeppni á vinnumarkaði inn í og gerir spítalanum erfitt að ná í starfsfólk Birna sagði ennfremur í ræðu sinni að skortur á starfsfólki hefði neikvæð áhrif á starfsandann og auki vinnuálag. Þar að auki sé húsakostur ekki lengur í samræmi við kröfur nútímans. Hvetur hún landsmenn til að standa vörð um byggingu nýs spítala, starfseminni til hagsbóta og landsmönnum til heilla. Birna bendir á í ræðu sinni að á Íslandi sé fyrir hendi öflugt heilbrigðiskerfi sem byggir á samfélagslegri ábyrgð þar sem heilbrigðisþjónusta er túlkuð sem mannréttindi og ráðist ekki af efnahag eða öðrum aðstæðum. Hún segir Íslendinga standa frammi fyrir breyttum aðstæðum í samfélaginu. Aukin eftirspurn eftir heilbrigðisþjónustu hafi haft það í för með sér að álagið hafi aukist og þar með kostnaður. Þar af leiðandi sé það nauðsynlegt að skoða þá möguleika sem bjóðast við fjármögnun og framkvæmd heilbrigðisþjónustunnar.
Mest lesið Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Innlent Tryggvi Gíslason er látinn Innlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Innlent Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Innlent Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Erlent Íranir gerðu hefndarárásir á herstöðvar í nágrannaríkjunum Erlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Ræða öryggis- og stjórnmálasamstarf á Eystrasaltssvæðinu Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Eldhúsdagur runninn upp Fræsa og malbika Reykjanesbraut við Smáralind í kvöld Tryggvi Gíslason er látinn Öskur, reykelsisfnykur, greiðslufall og gámarót Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Olíumengun í Kópavogslæk „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð Hringbraut eins og rússnesk rúlletta Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Sjá meira