Samið við Norðmenn án samráðs við þjóðina 25. apríl 2007 10:50 MYND/VG
Samningar við erlend ríki um varnaraðstoð er ekkert smámál sem ber að afgreiða á nokkrum dögum að mati formanns Samtaka herstöðvaandstæðinga. Hann segir nauðsynlegt að þjóðinni sé gefinn kostur að ræða innihald og efni varnarsamningsins við Noreg áður en hann er undirritaður. „Það er verið að reyna klára þetta mál án samráðs við þjóðina," sagði Stefán Pálsson, formaður Samtaka herstöðvaandstæðinga, í samtali við Vísi. „Það er látið í það skína að þetta sé smámál sem ráðherra geti klárað án þess að tekin sé umræða um það í þjóðfélaginu. Ef hér er hins vegar um raunverulega hernaðaraðstoð að ræða þá gerast samningar ekki stærri." Valgerður Sverrisdóttir, utanríkisráðherra, og Jonas Gahr Støre, utanríkisráðherra Noregs, undirrita á morgun samning um aukið samstarf þjóðanna í varnar- og öryggismálum. Ráðamenn hafa þagað þunnu hljóði um innihald samningsins en samkvæmt norska blaðinu Aftenposten kveður hann meðal annars á um að norskar herþotur sjái um eftirlit í lofthelgi Íslands og geri út frá Keflavíkurflugvelli. Fulltrúar allra þingflokka funduðu um málið í utanríkismálanefnd Alþingis í gær en samkomulag er á milli flokkanna um að gefa engar upplýsingar um málið fyrr búið er að undirrita samninginn. Stefán segist sannfærður um að enginn vilji sé meðal almennings á Íslandi að gera landið að æfingarbúðum fyrir norska herinn. „Ég er sannfærður um að það er enginn vilji fyrir þessu meðal almennings. Þessi atburðarrás og þessi leynd í kringum innihald samningsins er með hreinum ólíkindum."
Mest lesið Samþykktu aldrei að Sanna fengi oddvitasætið Innlent Minnir á hvernig Hitler komst til valda Innlent Hættur að hugsa bara um frið fyrst hann fékk ekki Nóbelinn Erlent Þjóðverjar yfirgefa Grænland Erlent Fann kattarhræ í margnota poka úti í hrauni Innlent Danir máttlausir gagnvart rússnesku ógninni í 20 ár Erlent „Þarf að klára að setja slaufu á pakkann“ Innlent Tala látinna hækkar í lestarslysinu á Spáni Erlent „Blasir við að íslenskt launafólk var svikið“ Innlent Ekki rétta leiðin að kynda undir læsisstríð Innlent Fleiri fréttir Vegagerðin bæti hringveginn eftir að grjót banaði ferðamanni Bréf Trumps til Norðmanna og væringar innan VG Verkútboð í vegagerð auglýst eftir langt hlé „Þarf að klára að setja slaufu á pakkann“ „Blasir við að íslenskt launafólk var svikið“ Um tvöfalt fleiri óánægðir en ánægðir með frestun gangna Ekki rétta leiðin að kynda undir læsisstríð Mælir fyrir samgönguáætlun í dag Fann kattarhræ í margnota poka úti í hrauni Samþykktu aldrei að Sanna fengi oddvitasætið Minnir á hvernig Hitler komst til valda VG og Sanna sameina krafta sína Sala á grænlenskum á Íslandi nær tvöfaldast Ekkert athugavert við fundinn og stjórnin starfshæf Stjórnvöld „í blindflugi“ í menntamálum í rúman áratug Haldið upp á 80 ára afmæli Hveragerðis allt afmælisárið Sambandið aldrei verra: Ísland gæti bæst á listann Dæmi um að nemendur hafi aldrei mætt í leikfimi Grænlandstollar vonbrigði og verðbólga spillir kjarasamningum Stöðugleikasamningarnir gætu sprungið strax í haust Heimsmálin, Grænland, menntun og fjölmiðlun á Sprengisandi Karólína Helga skákaði sitjandi oddvita í Hafnarfirði Ísland standi með Grænlandi og Danmörku Vonar að skólarnir verði frjálsir frá símum í haust Álagning aldrei hærri: Eldsneytisverð hefði átt að lækka enn frekar Líkir kærunni við „faglega aftöku“ „Vegferð ákæruvaldsins til skammar“ Menntamálaráðherra tekur yfir hjúkrunarheimilin Fjögur handtekin á Akureyri grunuð um innbrot Viðvarandi óvissuástand bitni á langtímaáætlunum fyrirtækja Sjá meira