Svíar gefa Íslendingum 800 fornmuni 24. apríl 2007 18:45
Svíar hafa ákveðið að afhenda Íslendingum til eignar hunduð fornmuna sem nú eru í geymslu í Norræna safninu í Stokkhólmi. Munirnir verða í framtíðinni geymdir í Þjóðminjasafni Íslands. Flestir gripanna eru frá 18. og 19. öld og komu upphaflega af bæjum víða um land, margir frá Vesturlandi. Norræna safnið í Stokkhólmi eignaðist gripina á seinni hluta 19. aldar, en það var í samræmi við stefnu safnsins sem vildi varpa ljósi á norræna menningu. Margrét Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður hefur átt í viðræðum við forstöðumann Norræna safnsins undanfarin ár um framtíðarvörslu íslenskra gripa safnsins á Íslandi. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra segir að um sé að ræða tæplega 800 gripi. Þetta sé búningaskart, söðlar horn og fleira sem átti að sýna íslenska alþýðumenningu á Norræna safninu. "Fyrir mína parta sýnir þetta mikinn vinahug og vinaþel Svía í okkar garð og þetta er stórmerkilegt að við skulum vera að fá alla þessa muni heim," segir menntamálaráðherra. Ráðherra segir að það sé ein meginforsendan fyrir því að geta tekið á móti þessum gripum, að Þjóðminjasafnið hafi verið endurreist. Íslendingar séu nú mun betur í stakk búnir til að taka á móti þessum gripum og gera á þeim rannsóknir. Menntamálaráðuneytð styrkir kostnaðinn við flutning gripanna til Íslands. En gripirnir verða sendir til Íslands um miðjan nóvember.
Mest lesið Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Innlent Fjölmiðlanefnd sektar Þórarin um hálfa milljón Innlent Starfsfólki hafi verið boðin lægri laun Innlent Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert Innlent Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Innlent Afhjúpi ekkert nema þeirra eigin viðhorf til fólksins í landinu Innlent Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Innlent Hvað gerist ef það verður jafnt? Innlent Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Erlent Leikskóli spratt upp eins og gorkúla Innlent Fleiri fréttir Hafa augun opin fyrir fleiri „hjálparlausum krúttum á vappi“ Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Svona var ávarp Kristrúnar vegna atkvæðagreiðslunnar Vandræðalegt þegar stjórnmálamenn komi inn á sviðið og ætli að breyta öllu Leikskóli spratt upp eins og gorkúla Afhjúpi ekkert nema þeirra eigin viðhorf til fólksins í landinu Pallbíll sem var illa lagt upphafið að nágrannaerjum Svipleg starfslok, í beinni frá fjöldafundi og söngkona sem syrgir Flaggað í hálfa stöng í bandaríska sendiráðinu Fjölmiðlanefnd sektar Þórarin um hálfa milljón Mikill munur á trausti til fjölmiðla í aðdraganda atkvæðagreiðslu Hvað gerist ef það verður jafnt? Eins og að hafa fimmtán menn inni á vellinum Svona verður atkvæðagreiðslan á laugardaginn Starfsfólki hafi verið boðin lægri laun Tvöfalt fleiri andvígir loðdýrarækt á Íslandi en hlynntir Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Starfsfólkinu boðin lakari kjör Grindavík á varaafli Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Stútur „með allt í skrúfunni“ Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Þyrluútköllum fjölgað verulega milli ára Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Sjá meira