Innlent

Segja kvótasölu ríkisins hækka matarverð

MYND/Getty

Samtök verslunar og þjónustu, SVÞ, mótmæla því að frítollakvótar vegna innflutnings kjöts og osta skuli hafa verið boðnir upp og seldir fyrir rúmar 430 milljónir króna á dögunum. Í tilkynningu frá samtökunum kemur fram að kvótauppboðin séu andstæð yfirlýstum markmiðum ríkisstjórnarinnar um lækkun matvöruverðs og hugmyndum um frítollakvóta. Samtökin benda á, að ef almennir kvótar vegna sömu vara verði boðnir upp í júní næstkomandi, og ef þeir seljast á svipuðu verði og í fyrra, megi áætla að ríkið hafi alls um 600 milljónir króna í tekjur af þessari kvótasölu á árinu 2007.

SVÞ segjast hafa lagt á það áherslu, þegar breytingar á búvörulögum voru til afgreiðslu fyrir þinglok, að þessum kvótum yrði úthlutað án uppboða. „Því miður var ekki fallist á þetta sjónarmið," segir í tilkynningunni. Ennfremur segir að landbúnaðarráðuneytið hafi ekki fallist á að nýta heimild til hlutkestis við úthlutun á tollkvóta vegna samningsins við ESB sem úthlutað var í vikunni eftir páska. Þess í stað hafi verið haldið áfram að úthluta þeim með kvótauppboðum.

"SVÞ voru fremur varkár í útreikningum sínum þegar þau vöruðu Alþingi og ríkisstjórn við því að sala á tollkvótum stefndi í að nema 500 milljónum króna á ári sem síðan myndi leggjast við innkaupsverð og stuðla að hækkuðu vöruverði í landinu, öndvert við það sem þingheimur á Alþingi hafði lýst yfir að þyrfti að verða," segir í tilkynningunni. Því hvetja samtökin til þess að aðferðum við úthlutun verði breytt og að aðrar aðferðir verði skoðaðar í því sambandi. „Nauðsynlegt er að koma í veg fyrir að aferðir ríkisins við úthlutun tollkvóta haldi áfram að stuðla að hærra vöruverði í landinu."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×