Straumurinn liggur vestur um páskana 4. apríl 2007 12:30 MYND/Valgarður
Straumurinn liggur vestur um páskahelgina, samkvæmt upplýsingum frá Flugfélagi Íslands þar sem hátíðin Aldrei fór ég suður virðist ætla að slá öll aðsóknarmet. Fjórum vélum verður flogið vestur í dag, aðrar fjórar fara á morgun og þrjár á föstudag sem eru tvöfalt fleiri ferðir en alla jafna. Einnig hefur verið bætt við vélum á flugleiðunum til Egilsstaða og Akureyrar um helgina og er allt að fyllast. Til dæmis er fullt í allar vélar til Ísafjarðar og Akureyrar á föstudag. Ætla má að Flugfélag íslands ferji fleiri en 6000 manns um páskahelgina. En það fara ekki allir fljúgandi og vill Slysavarnafélagið Landsbjörg vekja athygli á nokkrum góðum ferðareglum sem rétt er að hafa í huga áður en lagt er af stað. Sú fyrsta er að fylgjast með veðurspá, fara yfir hjólbarðana og hreinsa þá. Stilla aksturhraða miðað við aðstæður, muna að akstur og áfengi fer ekki saman, hafa beltin spennt og tryggja öryggi barnanna. Það sama á við ef ferðast er um hálendið, auk þess sem fólki er bent á að gera ferðaáætlun og skilja hana eftir hjá aðstandendum og kynna sér vel það svæði sem ferðast á um. Þá er vert að hafa í huga að víða er mikið er af krapa þessa dagana og margir hafa lent í vandræðum vegna hans. Allur búnaður þarf líka að vera í góðu standi, hlífðarfatnaður, farartæki og fjarskiptatæki. Landsbjörg minnir einnig á að betra er að snúa við í tíma heldur en að koma sér í ógöngur
Mest lesið Virðist alls ekki sjá eftir skvettunni Innlent Obama svarar ásökunum Trump og Gabbard um valdaránstilraun Erlent „Íbúar eru einfaldlega komnir með nóg“ Innlent Ætlar að kæra skvettarann sem segir árásina „bara brandara“ Innlent Þingmaður telur að vísa ætti skvettaranum úr landi Innlent Starfsfólk kannist ekki við uppsteyt á kvennadeild Landspítalans Innlent Karl Héðinn stígur til hliðar Innlent Skildirnir hafi hótað konum sem setji út á þá Innlent Sérsveitin handtók mann í Garðabæ Innlent Þetta er fólkið á bak við Skjöld Íslands Innlent Fleiri fréttir Tengist ekki skuggaflota Rússlands Játaði gróft ofbeldi gegn eigin foreldrum og að hafa ekið á mann Þingmaður telur að vísa ætti skvettaranum úr landi Þyrlan sótti slasaðan einstakling í Skaftafell Gæsluvarðhald yfir sveðjumanni í Úlfarsárdal framlengt þriðja sinni Sjaldséður beinhákarl í Faxaflóa Sérsveitin handtók mann í Garðabæ „Íbúar eru einfaldlega komnir með nóg“ Einn handtekinn vegna frelsissviptingar í Árbæ Meirihluti vill banna sjókvíaeldi Almenn andstaða við sjókvíaeldi og neikvætt viðhorf til þéttingar byggðar „Þetta er grátt mál þó ég hafi ekki gert neitt rangt“ Ætlar að kæra skvettarann sem segir árásina „bara brandara“ Virðist alls ekki sjá eftir skvettunni Sökk í mýri við Stokkseyri Gosmóðan fýkur á brott Meirihluti landsmanna ánægður með söluna á Íslandsbanka Karl Héðinn stígur til hliðar 56 prósent landsmanna neikvæð gegn þéttingu byggðar Umferð beint um Þrengslin í dag Sjö í fangageymslum og þremur vísað úr kirkju Stöðug virkni í einum gíg og gosmengun spáð á Suðurlandi Ættingjar að verða fyrir hryllilegum ódæðum Starfsfólk kannist ekki við uppsteyt á kvennadeild Landspítalans Bergþórshvoll brenndur á fjögurra daga Njáluhátíð Skildirnir hafi hótað konum sem setji út á þá Fyrsti konsertflygilinn í Skálholtskirkju vígður „Hvetjum fólk til þess að treysta okkur bara fyrir því“ Sækja mann sem datt af hestbaki Lögregla afþakkar þjónustu Skjaldar Íslands og Guðni boðar brennu Sjá meira