Hverjir syngja til úrslita? Hadda Hreiðarsdóttir skrifar 29. mars 2007 14:44 Guðbjörg, Jógvan og Hara ertu eftir í X-Factor
Tíunda og næstsíðasta úrslitakvöldið í X-Factor fer fram í beinni útsendingu frá Vetrargarðinum í Smáralind á morgun föstudag. Einungis þrjú atriði eru eftir - Jógvan, Hara og Guðbjörg og því ræðst það í þættinum hvaða tvö munu keppa til úrslita. Búast má við sérlega spennandi keppni. Öll atriðin hafa margsinnis sýnt og sannað að þau hafa eignast stóran og tryggan hóp stuðningsmanna. Þá er staðan í baráttu dómaranna einnig hnífjöfn - allir "eiga" þeir eitt atriði eftir í keppni og herma fregnir úr innanbúðum þáttarins að dómararnir ætli sér að beita öllum brögðum til að koma sínu fólki í úrslitaþáttinn. Síðasti þáttur var glæsileg skemmtun í alla staði en aðstandendur fullyrða að hann hafi aðeins verið vísirinn að því sem koma skal í tveimur síðustum þáttum þar sem m.a. má eiga von á óvæntum uppákomum og góðum gestum. Á þriðjudag verður haldinn blaðamannafundur þar sem fjölmiðlum gefst tækifæri til að ræða við þá sem keppa til úrslita, dómara og aðra aðstandendur þáttarins, auk þess sem upplýst verður um glæsilega umgjörð úrslitaþáttarins og það sem þar verður í boði, annað en sjálf rimman um sigurinn í X-Factor. Á fundinum verður einnig kynnt spánnýtt íslenskt lag sem sérstaklega hefur verið samið fyrir úrslitaþáttinn og sigurvegarinn kemur til með að syngja eftir að hann hefur verið krýndur. Lagið, í flutningi sigurvegara X-Factorsins, verður síðan gefið út á tonlist.is strax að þættinum loknum. Í síðasta þætti féll dúettinn Gís úr keppni eftir æsispennandi símakosning þar sem þátttaka var með mesta móti. Símakosningin réði því í fyrsta sinn alfarið hverjir féllu úr keppni, en ekki dómararnir. Gís hafnaði í neðsta sæti í símakosningunni og fékk fæst atkvæði en þar á undan kom Guðbjörg, á meðan Jógvan og Hara sluppu nokkuð vel fyrir horn. Gís dúettinn hafði vaxið mjög í keppninni eftir að hafa lent í hremmingum nokkuð snemma og var að margra mati farinn að gera hraustlegt tilkall til X-Factorsins.
Mest lesið Skoðunarferð um nýja Landspítalann á HönnunarMars Lífið Oddvitaáskorunin: Ófeiminn að taka undir þegar Frelsið tekur að óma Lífið Fólk undraðist að þær héldu barni frá skjám fyrstu tvö árin Lífið „Hélt það væri ekki hægt að bjarga mér“ Lífið Krakkatía vikunnar: Kirkjur, Gljúfrasteinn og nornahár Lífið Fyrsta jarðarförin í Flatey í 69 ár varð undursamlegt ævintýri Lífið Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Lífið Shakira söng fyrir milljónir á Copacabana Tónlist „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Lífið Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Lífið Fleiri fréttir Skoðunarferð um nýja Landspítalann á HönnunarMars Oddvitaáskorunin: Ófeiminn að taka undir þegar Frelsið tekur að óma Fólk undraðist að þær héldu barni frá skjám fyrstu tvö árin „Hélt það væri ekki hægt að bjarga mér“ Krakkatía vikunnar: Kirkjur, Gljúfrasteinn og nornahár Guðmundur og Erna eru gift Mörg þúsund „glataðir ljósmyndarar“ sóttu um „Bíddu, þetta er satt. Ég er með átröskun“ Fögnuðu nýrri líkamsræktarstöð í Grímsbæ Fyrsta jarðarförin í Flatey í 69 ár varð undursamlegt ævintýri Fréttatía vikunnar: Sjúkrabíll, guðshús og koss dauðans Oddvitaáskorunin: Ice ekki lengur eins viðeigandi viðurnefni vestanhafs Birna María og Egill eignuðust dreng Oddvitaáskorunin: Að stöðva Borgarlínuna efst á lista Reyndist sannspár um koss dauðans Britney ákærð fyrir ölvunarakstur „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Oddvitaáskorunin: „Sérvitur sveitavargur“ Stór brjóst eru stór Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Fengu Dern í stað Bonham Carter Jóhann Alfreð með púlsmæli og fékk að finna fyrir því Úrslitakvöld Eurovision verður í beinni á Rúv 2 Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Dorrit djammaði með Adwoa Aboah á Sikiley Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Sjá meira