Lífið

Jessica Simpson lætur gott af sér leiða

Jessica Simpson hugsar um þá sem minna mega sín
Jessica Simpson hugsar um þá sem minna mega sín MYND/Getty Images

Söngkonan Jessica Simpson hugsar um þá sem minna mega sín. Síðasta sunnudag gaf hún litla rútubifreið til munaðarleysingahælis í Mexíkó. Hafði Jessica unnið Chrysler sportbíl á MTV tónlistarverðlaunahátíðinni síðasta haust en fékk honum skipt fyrir rútubifreiðina.

Samkvæmt fjölmiðlafulltrúa Jessicu voru munaðarlausu börnin himinlifandi að sjá söngkonuna. Þegar hún rann í hlaðið umkringdu þau bifreiðina og kölluðu ,,Muchas gracias! Muchas gracias!" sem á íslensku útleggst sem kærar þakkir. Samkvæmt heimildum People var Jessica hrærð og ánægð með að geta hjálpað börnunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.