Alger bylting í samgöngumálum 23. mars 2007 18:30
Alger bylting verður í samgöngumálum á höfuðborgarsvæðinu á næstu þremur til fimm árum með lagningu Sundabrautar, tvöföldun Hvalfjarðarganga og hluta Vesturlandsvegar. Heildarkostnaður við þetta er um þrjátíu milljarðar króna. Forsætisráðherra telur jákvætt að hraða Sundabraut með þátttöku Faxaflóahafna. Stjórnarformaður og forstjóri Faxaflóahafna gengu á fund forsætis, samgöngu, og viðskiptaráðherra í stjórnarráðinu í morgun, til að ræða hugmyndir sínar um aðkomu Faxaflóahafna að fjármögnun og lagningu Sundabrautar. Geir H. Haarde forsætisráðherra sagði að loknum fundinum í morgun að ákveðið hafi verið að skipa starfshóp sem á að fara yfir alla þætti málsins. Geir sagði að honum litist vel á hugmyndir Faxaflóahafna og framlag þeirra til málanna væri jákvætt. Það mun liggja fyrir í lok sumars hvaða leið verður valin og um leið hvað langan tíma mun taka að klára lagningu brautarinnar. Sturla Böðvarsson samgönguráðherra sagði enn ekki liggja fyrir hvort valin yrði svo kölluð innri eða ytri leið, en það ætti að liggja fyrir í lok sumars. Þá gætu menn betur gert sér grein fyrir umfangi verkefnisins og hversu langan tíma það muni taka. Sundabraut mun kosta um 22 milljarða, þar af kosta göngin um 16 milljarða. Björn Ingi Hrafnsson stjórnarformaður Faxaflóahafna minnir á að þær séu stærsti einstaki eigandinn í Speli sem einnig reki Hvalfjarðargöngin. Þar sé nú verið að skoða að tvöfalda göngin og Vesturlandsveginn, sem gæti verið tilbúið til framkvæmda eftir tvö ár. Stækkun Hvalfjarðarganga kostar á bilinu 5-8 milljarða að sögn Björns Inga og hægt væri að hefja framkvæmdir innan tveggja ára.
Mest lesið Trump fer mikinn á Truth Social og virðist ætla sér Kanada Erlent Fyrsta árinu af fjórum lokið Erlent Hrókering hjá Helga og Miðflokknum vex Áss megin Innlent Rauð norðurljós vegna kórónugoss Innlent Lamdi konu stuttu eftir að hann var stunginn Innlent „Ekki gott að fólk sé endalaust að sulla svona í víni“ Innlent Ingibjörg býður sig fram í formanninn Innlent Skutu flugskeytum fyrir tólf milljarða á einni nóttu Erlent Fjórar hákarlaárásir á aðeins 48 klukkustundum Erlent Þrír fullir Íslendingar lausir úr haldi Innlent Fleiri fréttir Borgarstjórn biður vöggustofubörnin afsökunar Eldgos á næstu vikum enn líklegasta niðurstaðan Sjö tilkynningar um heimilisofbeldi að jafnaði á dag „Ekki gott að fólk sé endalaust að sulla svona í víni“ Styrkleiki að formaður Framsóknar eigi sæti á þingi Þrjátíu á slysadeild vegna hálku og sjúkrabílar á leiðinni með fleiri Mannréttindaráðið ræðir Íran að frumkvæði Íslands Fimm starfslokasamningar kostað Hafró 35 milljónir Ögranir Trumps halda áfram og tugir leituðu á bráðamóttöku í hálkunni Á þriðja tug á bráðamóttöku vegna hálkuslysa Ingibjörg býður sig fram í formanninn Þrír fullir Íslendingar lausir úr haldi Hrókering hjá Helga og Miðflokknum vex Áss megin Sandra tekin við af Guðbrandi Flughált í höfuðborginni og víðar um land Lamdi konu stuttu eftir að hann var stunginn Sænski herinn með viðbúnað á Íslandi Loðnuvertíð hafin og floti farinn til loðnumælinga Deilt um verðhækkanir Veitna Veita hjúkrunarheimilum ráðgjöf vikulega vegna drykkju eldri borgara Ráðherra hafi gefið veiðileyfi á sig Rauð norðurljós vegna kórónugoss Hljóp á sig Vegagerðin ræðst í úrbætur á slysstað banaslyss Össur um öryggismálin, vandi vinstrisins og falin fíkn eldri borgara Íslendingur handtekinn á EM Ráðuneytið vill að fleiri bjóði sig fram Ólafur sakar Ingu um að vera sjúka í að láta mynda sig við skóflustungur „Dapurlegt að gera ákvarðanirnar tortryggilegar“ Hundaeigendur hvattir til að vera á varðbergi Sjá meira