Lífið

Despó píparinn kaupir hafnarboltalið

James Denton var sportlegur á All-Star körfuboltaleik í NBA deildinni í febrúar
James Denton var sportlegur á All-Star körfuboltaleik í NBA deildinni í febrúar MYND/Getty Images

Píparinn úr Desperate Housewives, James Denton, þarf ekki lengur að gera við pípurnar hjá Teri Hatcher til að komast í þriðju höfn. Ástæða þess er sú að hann hann hefur keypt lítið hafnarboltalið. Heitir liðið Fullerton Flyers og er staðsett í Orange County. Fjárfesti James í hafnarboltaliðinu ásamt hóp fjárfesta en talið er að liðið hafi kostað yfir milljón bandaríkjadala. Það er því líf og fjör hjá James Denton.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.