Lífið

Britney útskrifuð úr milljónameðferð

Getty Images

Poppprinsessan Britney Spears er útskrifuð úr áfengismeðferð sem hún hefur verið í undanfarnar vikur á Promises-meðferðarstofnuninni í Malibu. Talsmenn hennar segja að hún muni ekki tjá sig við fjölmiðla að svo stöddu og biður aðdáendur um að virða rétt hennar til einkalífs, hún ætli nú að sinna sonum sínum tveimur. Promises-meðferðarstofunin er ekki fyrir hvern sem er. Þrjátíu daga meðferð þar kostar jafnvirði rúmlega þriggja milljóna króna en boðið er upp á útsýni yfir hafið, afeitrun, ráðgjöf og 12-spora meðferð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.