Innlent

Réttlætiskröfu almennings svarað með sjónhverfingu

MYND/GVA

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, sakaði stjórnarflokanna um að hafa stjórnarskrána að leiksoppi og að svara réttlætiskröfu almennings um sameign auðlinda með sjónhverfingu í nýju auðlindaákvæði í stjórnarskrá í eldhúsdagsumræðum á Alþingi í kvöld.

Ingibjörg Sólrún gerði komandi kosningar að umfjöllunarefni og benti á að ríkisstjórnin hefði gert margt gott í sinni stjórnartíð en vandinn væri sá að pólitískt útsýni hennar hefði verið takmarkað. Öll áhersla hefði verið á viðskiptalífið og stóriðju á meðan vandamál hefðu safnast upp. Þau sneru af byggðum landsins, öldruðum og öryrkjum og börnum og unglingum.

Mikilvægt væri að byggja upp 300 hjúkrunarrými á næstu árum og að aldraðir og öryrkjar gætu unnið án þess að vera refsað með skerðingum á lífeyrisréttingum. Þá sagði hún of miklar kröfur vera gerðar til foreldra og að börn ættu kröfu á tíma þeirra. Það væri verkefni stjórnvalda og aðila atvinnulífsins að stytta vinnutíma svo foreldrar gætu verið meira með börnum sínum.

Ingibjörg Sólrún sagði Ísland hafa fjarlægst nágrannaríkin þegar kæmi að velferðarmálum. Jafnaðarmenn hefðu komið að því að byggja upp velferðarkerfi hér á landi á fyrri hluta síðustu aldar og Samfylkingin þyrfti nú að endurreisa það kerfi.

Hún sagði vandasama tíma fram undan í efnahagsmálum en bjart fram undan í íslensku samfélagi. Vinna þyrfti að uppgangi landsins í sátt við náttúru og með jafnvægi milli landsbyggðar og höfuðborgar og gæta þess að landið sporðreistist ekki í vaxtagleði landsins.

Hún sagði kosið um það í vor hvaða flokkur væri tilbúinn að takast á við þau fjölmörgu verkefni sem biðu landsins, meðal annars í samkeppni ríkja og þeirri viðleitni að tryggja sem bestan jöfnuð. Hún óttaðist ekki þann dóm. Hún væri sannfærð um að þörf væri fyrir frjálslynda og sanngjarna jafnaðarstefnu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×