Illugi snýr aftur og tekur enga sénsa 8. mars 2007 23:00 Bryndís Sveinsdóttir datt út út Meistaranum í gærkvöldi.
IIllugi Jökulsson byrjaði keppni í Meistaranum í gærkveldi með viðlíka krafti og í fyrra þegar hann tók einnig þátt í þessum vinsæla spurningaþætti sem sýndur er á Stöð 2 á fimmtudagskvöldum. Í þessari fjórðu viðureign 16 manna úrslita lagði Illugi Bryndísi Sveinsdóttur, 29 ára gamlan háskólanema og blaðakonu, næsta örugglega. Það var líka ljóst mjög snemma í viðureigninni í hvað stefndi. Illugi náði þá öruggri forystu sem hann hélt allt til enda. Loga Bergmanni og Illuga var tíðrætt um hvað farið hafði úrskeiðis hjá síðarnefnda í síðustu keppni, þegar hann féll úr keppni í undanúrslitum með því að tapa fyrir Jónasi Erni Helgasyni, sem síðan vann sigur og stóru peningaverðlaunin, 5 milljónirnar. Illugi sagðist staðráðinn í að falla ekki aftur úr keppni með sama hætti; nú skyldi hann flaska á spurningu sem hann vissi ekki svarið við, fremur en að láta taugarnar bera sig ofurliði líkt og gerðist síðast. Og með þetta hugfast tilkynnti Illugi að hann hefði gert upp við sig að taka enga sénsa að þessu sinni, kalla ekki yfir sig spennu með því að taka óþarfa áhættur. Það stóð hann líka við þegar á reyndi í viðureign kvöldsins. Það var þegar forysta hans var orðin svo mikil nálægt lokum viðureignarinnar að Logi Bergmann bauð honum að leggja forystuna undir og freista þess að vinna sér inn á bilinu 100 til 500 þúsund krónum með því að svara stóru Meistaraspurningunni. Illugi lét hinsvegar ekki til leiðast, afþakkaði gylliboðið, baðst innilegrar afsökunar á heigulshætti sínum en frábað sér um leið slíkan spennuvald. Þar með voru úrslitin svo gott sem ráðin og lokastaðan varð 25-8, Illuga í vil. Yfirburðarsigur í höfn. Illugi er þar með kominn á beinu brautina. Aftur kominn í 8 manna úrslit, ásamt þeim Magnúsi Þorláki Lúðvíkssyni, Páli Ásgeiri Ásgeirssyni og Helga Árnasyni. Fimmta viðureign fyrstu umferðar fer fram að viku liðinni, fimmtudaginn 15. mars. Þar eigast við tveir margfróðir spekingar sem eiga það sameiginlegt að vera sérlegir áhugamenn um umhverfismál, og það í víðustu merkingu. Þetta eru þeir Sigurður G. Tómasson og Björn Guðbrandur Jónsson. Sigurð G. þarf vart að kynna en hann er margreyndur útvarpsmaður sem numið hefur m.a. jarðfræði og íslensku en Björn Guðbrandur er umhverfisfræðingur og framkvæmdastjóri Gróðurs fyrir fólk í Landnámi Ingólfs. Margir muna eflaust eftir Birni Guðbrandi en hann tekur nú þátt í annað sinn eftir að hafa fallið úr keppni í 16 manna úrslitum í fyrstu Meistarakeppninni. Vefsíða þáttarins er: www.visir.is/meistarinn. Þar er kynning á öllum keppendum, Logi Bergmann bloggar reglulega um framgang keppninnar, hægt er að spreyta sig á inntökuprófinu alræmda og boðið er upp á skemmtilega spurningaleiki þar sem skemmtileg verðlaun eru í boði.
Mest lesið Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart Lífið „Þegar ég syng finn ég mest fyrir pabba“ Lífið Krakkatía vikunnar: Tjútt, tjull og feitir bangsar Lífið Málverk af Danakonungi vekur athygli Menning Hlaut óvænt heiðursverðlaun RIFF Bíó og sjónvarp Fréttatía vikunnar: Kíró, tár og ræningjarenna Lífið Howie B og Hiraki Saka í Gamla bíó Tónlist „Bjóða upp á einhverja díla sem meika engan sens og undirbjóða allt“ Lífið Segir stjórnendur Ungfrú Ísland hafa gert upp á milli keppenda Lífið Taka upp Netflix þætti í miðbænum og Tina Fey óvæntur gestur Lífið Fleiri fréttir Krakkatía vikunnar: Tjútt, tjull og feitir bangsar Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart „Þegar ég syng finn ég mest fyrir pabba“ Fréttatía vikunnar: Kíró, tár og ræningjarenna Segir stjórnendur Ungfrú Ísland hafa gert upp á milli keppenda Taka upp Netflix þætti í miðbænum og Tina Fey óvæntur gestur Laug um að Jay-Z hefði nauðgað henni „Bjóða upp á einhverja díla sem meika engan sens og undirbjóða allt“ „Það voru margir með tár á hvarmi“ Svín út um allt í fallegu einbýli Björns Braga Margot Robbie ekki lengur Margot Robbie Hvað veistu um… kvikmyndahátíðir? Kærasta Love Island stjörnunnar Davide í fangelsi Birgitta mætti sem fimleikakona, markmaður, leikmaður og þjálfari Taylor og Taylor nefndu barnið Taylor Þú trúir ekki hvað lögreglan gerði við sönnunargagnið Greiðir sér hálfan milljarð í arð Bandarísk sjónvarpsstjarna spókaði sig um í miðbænum „Rosalegt brot á mínu einkalífi“ Edda með tárin í augunum Fyrrverandi maður Clancy á von á barni Kynlífsstunur og sjálfsfróun á tískusýningu Veltir fyrir sér hvers vegna hún sé alltaf gröð í flugvél Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu Í kossaflensi á listasýningu Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Misstu sig þegar sigurinn var í höfn Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Cindy Crawford óhuggandi eftir andlátið Sjá meira