SATC stjarnan Sarah Jessica Parker er að fara að selja sína eigin fatalínu undir nafninu Bitten. Sarah hélt hádegisfund með tískuritstjórum á veitingastaðnum Indochine í gær. Samkvæmt heimildum NY Post mun línan verða fáanleg í versluninni Steve & Barry's, sem er lágvörukeðja með eina búð í verslunarmiðstöð á Manhattan.
Línan inniheldur gallabuxur, undirföt, hversdagsfatnað og skartgripi sem munu vera á mjög hagstæðu verði.
Það verður gaman að sjá hvort klæðnaðurinn beri merki Carrie Bradshaw, en Sarah þótti afar vel klædd í hlutverki hennar í Sex and the City.