Fleiri stelpur vantar í forritun 14. mars 2007 06:15
Forritunarkeppni framhaldsskólanna var haldin í sjötta skipti um síðustu helgi á vegum tölvunarfræðisviðs Háskólans í Reykjavík. Keppt var í þremur deildum, Alfa, Beta og Delta, og tóku átján lið þátt frá tíu framhaldsskólum. Lið Iðnskólans í Reykjavík, Titus Livy, hlaut fyrstu verðlaun í Alfa-deildinni, sem er fyrir þá sem eru lengst komnir. Var liðið skipað þeim Guðna Þór Guðnasyni, Magnúsi Skúlasyni og Eyþóri Sigmundssyni. Frumlegustu lausnina hlaut The Union frá Fjölbrautaskóla Suðurlands. Keppendur völdu flottasta lógó liðanna og var það 3Minds frá Iðnskólanum í Reykjavík sem hlaut þau verðlaun. „Þetta gekk rosalega vel. Það er gaman að sjá hvað áhuginn er mikill fyrir þessari keppni," segir Hrund Steingrímsdóttir, markaðsfulltrúi hjá Háskólanum í Reykjavík. „Kannski verður þessi keppni til að virkja forritunarkennslu í framhaldsskólum landsins sem virðist vera dálítill skortur á. Það skiptir miklu máli að kennararnir nái að virkja nemendurna," segir hún. Samhliða forritunarkeppninni var haldin lógókeppni. 25 lógó voru send inn og hlaut Arnar Már Hall Guðmundsson fyrstu verðlaun. Verður lógóið hans notað sem hluti af kynningarefni keppninnar skólaárið 2007-2008. Hörður Helgi Tryggvason lenti í öðru sæti og Margrét Lára Höskuldsdóttir í því þriðja. Þau eru öll nemendur af upplýsinga- og fjölmiðlabraut Iðnskólans í Reykjavík. Aðeins tvær stelpur tóku þátt í keppninni í þetta sinn. „Þetta er svolítil strákakeppni en við viljum fá fleiri stelpur. Það er spurning hvað þarf að gera til að virkja stelpur. Kannski þarf að breyta ímynd forritarans. Það eru margir sem hugsa að tölvunarfræði sé bara forritun en það er svo margt annað í henni. Síðan er til þessi ímynd að forritari sé sveittur karl úti í horni í netabol að drekka kók en það er ekki ímyndin sem við viljum hafa," segir Hrund.
Mest lesið Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart Lífið „Þegar ég syng finn ég mest fyrir pabba“ Lífið Málverk af Danakonungi vekur athygli Menning Hlaut óvænt heiðursverðlaun RIFF Bíó og sjónvarp Fréttatía vikunnar: Kíró, tár og ræningjarenna Lífið Howie B og Hiraki Saka í Gamla bíó Tónlist Krakkatía vikunnar: Tjútt, tjull og feitir bangsar Lífið „Bjóða upp á einhverja díla sem meika engan sens og undirbjóða allt“ Lífið Segir stjórnendur Ungfrú Ísland hafa gert upp á milli keppenda Lífið Léleg lokasena skemmir ágætt leikrit Menning Fleiri fréttir Krakkatía vikunnar: Tjútt, tjull og feitir bangsar Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart „Þegar ég syng finn ég mest fyrir pabba“ Fréttatía vikunnar: Kíró, tár og ræningjarenna Segir stjórnendur Ungfrú Ísland hafa gert upp á milli keppenda Taka upp Netflix þætti í miðbænum og Tina Fey óvæntur gestur Laug um að Jay-Z hefði nauðgað henni „Bjóða upp á einhverja díla sem meika engan sens og undirbjóða allt“ „Það voru margir með tár á hvarmi“ Svín út um allt í fallegu einbýli Björns Braga Margot Robbie ekki lengur Margot Robbie Hvað veistu um… kvikmyndahátíðir? Kærasta Love Island stjörnunnar Davide í fangelsi Birgitta mætti sem fimleikakona, markmaður, leikmaður og þjálfari Taylor og Taylor nefndu barnið Taylor Þú trúir ekki hvað lögreglan gerði við sönnunargagnið Greiðir sér hálfan milljarð í arð Bandarísk sjónvarpsstjarna spókaði sig um í miðbænum „Rosalegt brot á mínu einkalífi“ Edda með tárin í augunum Fyrrverandi maður Clancy á von á barni Kynlífsstunur og sjálfsfróun á tískusýningu Veltir fyrir sér hvers vegna hún sé alltaf gröð í flugvél Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu Í kossaflensi á listasýningu Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Misstu sig þegar sigurinn var í höfn Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Cindy Crawford óhuggandi eftir andlátið Sjá meira