Spaugstofumaður fann svarið í hóptrommuslætti 14. mars 2007 07:45 „
Ég byrjaði að tromma á síðasta ári. Og fór að átta mig fjótlega á því að þetta var eitthvað miklu merkilegra en ég hafði haldið fram að því. Fór að rannsaka málið og komst að því að trommuleikur, og sérstaklega trommuleikur í hópi, er öflugt félagslegt fyrirbæri. Mannbætandi áhrif í alla staðai, félagslega, heilsufarslega og andlega. Heilrænt tromm,” segir Karl Ágúst Úlfsson Spaugstofumaður og ... trymbill. Á laugardaginn ætlar Karl Ágúst að gangast fyrir miklum trommugerningi eða svonefndum trommuhring, í Kringlunni klukkan tvö. Er meiningin að gestum Kringlunnar gefist tækifæri á að setjast saman í hring og leiki saman allir sem einn á handtrommur. Og trommuslættinum mun Karl Ágúst stjórna. Hljóðfærin fær hann lánaðar hjá Hljóðfærahúsinu. Trommarinn Karl Ágúst segist enda ekki eiga bumbur til að lána þeim mannfjölda sem að er stefnt. Einhvern veginn er það svo að menn tengja ekki Spaugstofumann Karl Ágúst trommuslætti. Ekkert sérstaklega. En hann hefur farið víða um veröld og kynnt sér fyrirbærið. Lært að stjórna trommuhringjum. Og ljóst má vera að honum er rammasta alvara með að halda bongum og kongum og hvað þetta heitir nú allt að fólki. Breiða út fagnaðarerindið. „Í raun og veru. Ég er að temja mér að vera meira með hlutunum en á móti. Í staðinn fyrir að vera á móti firringu ætla ég að vera fylgjandi því að fólk tengist sjálfu sér. Finni lífsins takt, finni innri takt... í staðinn fyrir að tapa sér í þrasi og neikvæðni.” En ertu ekki að velta þér upp úr þrasi og neikvæðni dagana langa í Spaugstofunni? „Ég reyni reyndar að taka það jákvæðum tökum en sú hætta er fyrir hendi að maður sé eilíflega að hneykslast í staðinn fyrir að halla sér að því sem gengur í hina áttina.” Og svarið fann Karl Ágúst í bumbuslætti. Hugmyndin er ættuð frá Afríku þar sem fólk kemur saman að degi loknum, kastar af sér amstri dagsins og spilar á trommur í hópi. „Alveg rosalega áhrifaríkt og félagslega mikilvægt. Og má alls ekki misskiljast. Þetta er ekki endilega fyrir atvinnutrommara. Alls ekki. Þetta er fyrir alla. Enginn þarf að hafa snert á trommuskinni til að vera með. Hver gerir þetta á sinn hátt. Margir halda að þeir hafi ekki takt. En það er vitleysa. Við þurfum ekki annað en hafa hjartslátt til að hafa takt.”
Mest lesið Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Lífið Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Lífið Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Lífið Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Lífið Ekki er allt sem sýnist í Dimmu Tónlist Tæplega helmingur tilnefndra leikara til Eddunnar erlendur Bíó og sjónvarp „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ Lífið Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Lífið Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð Lífið Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Lífið Fleiri fréttir Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Það er komið gó hjá Bó Svala minnist pabba síns Tekur við af dóttur kærastans Lifir með sjúkdóminum en lætur ekkert stöðva sig Skilnaður foreldranna mótað hana einna mest Hórdómur vinsældanna: Núll stjörnur Hvað veistu um… styttur í Reykjavík? Söfnuðu kleinuhringjum ofan í fötu með skrautlegri aðferð Algengur misskilningur að hávært fólk sé með mesta sjálfstraustið The Streets koma fram á Iceland Airwaves „Það er enginn að fara senda þig í stríð“ Aflýsa Wireless eftir að Kanye var meinað að fara til Bretlands Mos Def kemur fram í Gamla Bíó í maí Eftir á fyndið að vera stönguð niður af kind Ráðherrabarn komið í heiminn Furðubandið sem tryllti netið Móðir drengs í ofbeldissambandi opnar sig Offset skotinn við spilavíti í Flórída „Ekki óttast mistök, en vertu skíthrædd við eftirsjá“ Sjá meira