Sökuð um úrræðaleysi í málum langt leiddra vímuefnasjúklinga 21. febrúar 2007 16:27 MYND/Stefán
Hart var deilt á heilbrigðisráðherra og ríkisstjórnina fyrir dugleysi í málefnum langt leiddra áfengis- og vímuefnasjúklinga í utandagskrárumræðu á Alþingi í dag. Það var Margrét Frímannsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, sem hóf umræðuna og benti á mikið hefði verið rætt um meðferðarstofnanir og starfsemi þeirra í kjölfar frétta af Byrginu. Ekki væri þó ætlunin að fjalla um það heldur um meðferðarstofnanir sem fengju styrki frá ríkinu að því er virtist til þess að firra ríkið ábyrgð á málefnum áfengis- og vímuefnasjúklinga. Benti Margrét á að rekstur slíkra stofnana, sem heyrðu annaðhvort undir félagsmálaráðuneytið eða heilbrigðisráðuneytið, væri misjafn en margar þeirra segðust sinna meðferð á áfengis- og vímuefnasjúklingum. Sagði Margrét slíkar stofnanir ekki veita viðurkennda meðferð þar sem hún færi ekki fram undir handleiðslu fagaðila. Verið væri að meðhöndla mjög veika einstaklinga, sem sumir glímdu við marga sjúkdóma. Þeir ættu rétt samkvæmt lögum að fá þjónustu fagfólks. Spurði hún heilbrigðsisráðherra út í málaflokkinn, meðal annars hvað réði mati stjórnvalda á því hvaða sjúklingar færu á heilbrigðsstofnun og hver til meðferðaraðila sem heyrðu undir félagsmálaráðuneytið og hvort ráðherra ætlaði að beita sér fyrir því að efla starfsemi SÁÁ sem átt hefði í fjárhagserfiðleikum. Siv Friðleifsdóttir heilbrigðisráðherra sagði það háð mati sjúklings eða aðstandenda hans hvert hann væri sendur og benti á að yfirlæknir meðferðardeildar Landspítalans hefði lýst því yfir að aðgengi að meðferðum væri óvíða betra en hér á landi. Þá sagði Siv að ekki væri veitt þjónusta, sem heyrði undir félagsmálaráðuneytið nú, sem skilgreind væri sem heilbrigðisþjónusta en rétt væri að athuga hvort flytja ætti ákveðna starfsemi sem nú heyrði undir heilbrigðisráðuneytið undir félagsmálaráðuneytið. Sagðist ráðherra jafnframt ætla að beita sér fyrir eflingu SÁÁ en tilgreindi ekki hvernig. Þingmenn stjórnarandstöðunnar gagnrýndu að heilbrigðisþjónusta hefði brugðist hjá langt leiddum sjúklingum og að úrræði vantaði fyrir langtímameðferð. Þá þyrfti samræmt mat á gæðum þjónustunnar. Þá var jafnframt gagnrýnt að fólk sem væri alvarlega veikt hefði verið sent í Byrgið þar sem hvorki hefðu verið sálfræðingar né hjúkrunarfræðingar og aðeins læknir í hlutastarfi. Magréti Frímannsdóttur líkaði ekki svör ráðherra og sakaði hana um þvaður og að láta sem allt væri í lagi. Benti hún á að meðferðarheimili eins og Byrgið hefði orðið til þar sem stjórnvöld hefðu ekkert gert í málefnum áfengis- og vímuefnasjúklinga sem væru á götunni. Siv sagði í seinni ræðu sinni að unnið væri að stefnumótun í ráðuneytinu í málaflokknum og sagði greinilegt að stjórnarandstæðingar þyldu ekki að heyra orð yfirlæknis meðferðardeildar LSH sem segði aðgengi að meðferð óvíða betra.
Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Veður Segja engan fund á dagskrá Erlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Innlent Fleiri fréttir Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Sjá meira