Innlent

Mosfellsbær boðar til fundar vegna Helgafellsvegar

Mosfellsbær boðar til opins kynningarfundar um hönnun og útfærslu tengivegar inn í Helgafellshverfi. Fundurinn verður þriðjudaginn 13. febrúar í Listasal Mosfellsbæjar.

Í yfirlýsingu frá bæjarfulltrúum meirihlutans í Mosfellsbæ segir að þeir hafi ekki séð sért fært að mæta á fund Varmársamtakanna í dag sökum lítils fyrirvara. Bænum sé hins vegar kappsmál að upplýsa bæjarbúa og aðra sem málið snertir um skipulag í bænum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×