Innlent

112 dagurinn á morgun

Í ár er 112 dagurinn helgaður störfum sjálfboðaliða.
Í ár er 112 dagurinn helgaður störfum sjálfboðaliða. MYND/Guðmundur

Á morgun er 112 dagurinn og verður þá fjölbreytt dagskrá um allt land á vegum viðbragðsaðila í björgun og almannavörnum. Í ár er dagurinn helgaður störfum sjálfboðaliða. Á hádegi leggur 112 lestin af stað frá Skógarhlíð en á bilinu 30 til 40 bílar lögreglu, slökkviliðs og björgunarsveita verða í lestinni, auk þyrlu Landhelgisgæslunnar. Sérstök dagskrá verður í Smáralindinni frá 12 til 17.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×