Innlent

Dæmdir fyrir að ræna manni og misþyrma honum

MYND/Þorvaldur

Héraðsdómur Reykjaness dæmi í dag þrjá unga karlmenn fyrir að ræna í maí á síðasta ári tvítugum karlmanni og misþyrma honum.

Þeir námu manninn á brott af heimili hans í Garðabæ, óku með hann upp í Heiðmörk og gengu í skrokk á honum þar. Þar var hann skilinn eftir þar til hestamaður reið fram á hann. Maðurinn hlaut lífshættulega áverka.

Einn mannanna fékk fimmtán mánaða dóm, þar af tólf mánuði skilorðsbundið, annar tólf mánuði, þar af níu mánuði skilorðsbundið og sá þriðji fékk tveggja mánaða skilorðsbundinn dóm

 

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×